26. maí Flug til Mílanó og ekið til Saint-Raphaël
Brottför frá Keflavík kl. 7.30. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Mílanó kl. 13.20 að staðartíma. Þaðan verður haldið að frönsku Rívíerunni í Provence héraðinu, til bæjarins St. Raphaël, þar sem gist verður næstu 6 nætur. Hótelið er staðsett við höfnina í miðbænum þaðan sem fallegt útsýni er út á hafið og Côte d’Azur ströndina. Á hótelinu er sjónvarp, ísskápur, hárþurrka,
tækjasalur, sauna, útisundlaug og sólbekkir. Komið verður um kl. 20.00 á hótel þetta kvöld, þar sem kvöldverður bíður okkar.
27. maí Dagur í St. Raphaël
Tökum morguninn rólega og förum um kl. 11.00 í stutta skoðunarferð með heimamanni sem kynnir okkur líf bæjarbúa. St. Raphaël er með vinsælustu ferðamannabæjum strandarinnar og þar búa um 27.000 íbúar. Þessi fallegi hafnarbær er þekktur heilsubær, bæði á sumrin og veturna. St. Raphaël liggur við samnefndan flóa og í vestur rennur hann saman við bæinn Fréjus. Bæirnir voru áður undir Rómverjum og kom Júlíus Sesar til að mynda að stækkun hafnarinnar í Fréjus og þar kom Napóleon að eftir Egyptalandsárásina 1799, einnig sigldi hann þaðan út í eyjuna Elbu árið 1814. Eftir skoðunarferðina verður frjáls tími fram að kvöldverð á hótelinu.

28. maí St. Maxime - Bátsferð til St. Tropez
Hefjum daginn á því að aka til St. Maxime, fallegs og skemmtilegs bæjar við St. Tropez flóann. Eftir að hafa stoppað þar siglum við til listamannabæjarins St. Tropez sem er einn frægasti ferðamannabærinn við frönsku Rívíeruna. Brigitte Bardot býr þar enn í dag og fleiri Hollywood stjörnur halda þar til yfir sumartímann. Förum í skoðunarferð um St. Tropez með heimamanni og svo gefst góður tími til að kanna bæinn á eigin vegum.
29. maí Dagur í Cannes
Nú verður ekin falleg leið með ströndinni Corniche de l'Estérel sem einnig er kölluð „Gullströndin“, til Cannes sem er töfrandi staður með sitt einstaklega fallega borgarstæði. Gengið að kvikmyndahöllinni og að sjálfsögðu á rauða dreglinum, en Cannes er einmitt frægust fyrir alþjóðlegu kvikmyndahátíðina sem haldin er þar ár hvert. Eftir það verður ekið til Grasse, heimsfrægs bæjar vegna ilmvatnsiðnaðar hans sem hófst þegar Katharina frá Medici kom ilmandi hönskum í tísku á 16.öld og varð upphafi að blómatíma borgarinnar. Í dag eru 40 fyrirtæki starfrækt þar og ætlum við að líta inn í eitt þeirra.

30. maí Aix-en-Provence
Aix-en-Provence er með stærri háskólaborgum landsins og nema þar um 30.000 háskólanemar. Hægt er að segja að borgin sé með dýrustu en einnig fallegustu borgum landsins, umvafin fjöllum og sléttum. Sjá má glæsileika fortíðar á listasafni og kirkjum borgarinnar og einnig fjölmörgum einkahöllum sem byggðar voru í barokkstíl á 17. og 18. öld, en þessar sömu einkahallir eru í dag lúxushótel. Aix, eins og hún er jafnan kölluð, er einnig þekkt fyrir gómsæta möndlukonfektið sitt, Calissons. Farið verður í skemmtilega skoðunarferð um borgina með heimamanni, en eftir það verður frjáls tími til að kanna borgina á eigin vegum.
31. maí Frjáls dagur í Saint-Raphaël
Í dag ætlum við að slaka á og njóta þess að vera á þessum glæsilega stað. Hægt er að nýta sér aðstöðuna við hótelið, skoða bæinn betur og taka góða gönguferð með ströndinni. 
1. júní St. Raphaël, furstadæmið Mónakó og Genúa
Eftir yndislega daga í St. Raphaël, er haldið áfram til Genúa á Ítalíu þar sem gist verður síðustu nóttina áður en haldið verður heim á leið. En á leiðinni þangað verður stoppað í Mónakó, þar sem fegurðin svíkur engan. Förum í skoðunarferð um borgina, heimsækjum t.d. höll furstafjölskyldunnar, dómkirkjuna þar sem Grace Kelly var borin til grafar, komum í kaktusgarðinn þar sem skemmtilegt útsýni er yfir borgina og ekki má gleyma spilavítinu.
2. júní Heimferð
Eftir glæsilega og skemmtilega ferð verður ekið til Mílanó. Brottför þaðan kl. 14.20 og lending í Keflavík kl.16.35 að staðartíma.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
Verð: 187.300 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 44.600 kr.

Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
Valfrjálst:
Sigling til St. Tropez ca. € 14, kaktusgarðurinn í Mónakó ca. € 8, höll furstafjölskyldunnar í Mónakó ca. € 8.
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.