Sumar

 
 

Sumar 1 - Suðræn sveifla í Saint-Tropez



26. maí – 2. júní 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
 

Franska Rívíeran, eða Côte d’Azur, í Provence héraðinu, er helsti áfangastaðurinn í þessari yndislegu ferð. Ferðin hefst á flugi til Mílanó og þaðan haldið rakleiðis til bæjarins Saint-Raphaël við hinn fagra Fréjus flóa. Gistum þar, á frönsku Rívíerunni, í 6 nætur á góðu hóteli. Þaðan verður farið í ævintýralegar skoðunarferðir, m.a. komið til Sainte-Maxime sem er líflegur bær við hinn fallega Saint-Tropez flóa. Þaðan verður farið í bátsferð til listamannabæjarins Saint-Tropez, þar sem Brigitte Bardot býr, en hann er einn af frægustu bæjunum við frönsku Rívíeruna. Einnig verður komið til Aix-en-Provence sem er með fallegustu en einnig dýrustu borgum Frakklands og ekið eftir Corniche de l’Estérel strandleiðinni eða hinni svokölluðu „Gullströnd“ til Cannes. Þaðan förum við til Grasse sem er heimsfrægur bær vegna ilmvatnsiðnaðarins sem hófst þar á 13.öld. Einnig gefst góður tími í Saint-Raphaël til að njóta fegurðarinnar við frönsku Rívíeruna. Þaðan verður ekið til Genúa á Ítalíu þar sem gist verður síðustu nóttina. Á leiðinni þangað verður farið í skoðunarferð um furstadæmið Mónakó, hið fagra borgríki við Miðjarðarhafið.
 

  

Sumar 2 - Fljótasigling á Rín


2. – 7. júní 2012     2 SÆTI LAUS!
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir
 

Rómantík, rólegheit og óviðjafnanleg fegurð lýsa þessari ferð í hnotskurn. Boðið verður upp á fljótasiglingu á Rín, einu af stærstu fljótum Evrópu, með viðkomu í fallegum borgum og bæjum. Ferðin byrjar á flugi til Frankfurt þaðan sem ekið verður að ferjustað í Strassborg í Frakklandi og farið um borð í fljótaskip þar sem gist verður í 5 nætur. Fyrst verður siglt í átt að gamla vínbænum Rüdesheim með fjörugu mannlífi, tónlist og fögru útsýni. Þar bíður okkar „Winzerexpress“ lestin, lítil lest, sem flytur okkur á tónlistarsafnið í bænum. Daginn eftir verður siglt áfram að þýska horninu (Deutsches Eck), þar sem Mósel og Rín mætast og þaðan um rómantíska Rínardalinn sem hefur að geyma fagrar hallir og Loreley klettinn. Ferðin heldur áfram til borgarinnar Nijmegen sem byggð var á fallegri hæð og er elsta borg Hollands. „Feneyjar norðursins“, Amsterdam, er næsti áfangastaður okkar. Farið verður í skoðunarferð um hina litríku og líflegu Amsterdam og um kvöldið verður farið í útsýnissiglingu um borgina. Flogið heim frá Amsterdam en einnig stendur til boða að framlengja ferðina og dvelja á eigin vegum í borginni.
 


    

Sumar 3 - Vatnafegurð Alpanna


7. – 14. júní 2012
Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir
 

Austurrísku Alparnir umvefja okkur og náttúran skartar sínu fegursta á þessum árstíma við stærsta alpavatn Evrópu, Wörthersee, í Kärnten héraðinu. Ferðin hefst á flugi til München þaðan sem haldið verður til Salzburg í Austurríki, sannkallaðrar perlu landsins og gist þar fyrstu nóttina. Farið verður í skoðunarferð um Salzburg og einnig gefst þar frjáls tími til að kanna líf bæjarbúa áður en haldið er áfram til Pörtschach við Wörthersee, sem stendur við norðurbakka vatnsins og teygir sig út á tanga í vatninu. Þar gistum við í 5 nætur og förum þaðan í skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. til Klagenfurt, höfuðstaðar Kärnten héraðsins sem er mikil lista– og menningarborg. Eftir það ekið inn í dalinn Vier-Seental, til Keutschach am See og njótum besta útsýnis svæðisins úr 905 m hæð frá stórkostlegum útsýnisturni, en farið er þangað upp með lyftu. Einnig verður komið að Bled-vatni í Slóveníu þar sem fegurðin er óviðjafnanleg og siglum út í eyjuna Blejski otok þar sem er þekkt Maríukirkja. Förum í siglingu um Wörthersee sem er rómað fyrir fegurð sína og upplifum „Tónöldur Wörthersee“ í Velden eitt kvöldið, ljósasýningu við vatnið með tónlistarundirleik, en Velden er einn mest sótti ferðamannabærinn við vatnið. Eftir yndislega daga verður ekið til Deggendorf í Bæjaralandi þar sem gist verður síðustu nóttina.
 


        

Sumar 4 - Grikklandsævintýri


11. – 25. júní 2012
Fararstjóri: Þóra Valsteinsdóttir
 

Í Grikklandi mætast saga og náttúra á einstakan hátt. Hvar sem ferðalangurinn tyllir niður fæti, opnast fyrir honum mörg þúsund ára saga. Frá örófi alda ófu Grikkir þann örlagaþráð sem varð kveikjan að þeirri heimsmenningu sem við búum við enn þann dag í dag. Rammi þeirrar sögu er landið sjálft, sjórinn sem umlykur það, fólkið og náttúran sem skartar sínu fegursta á fyrstu mánuðum sumarsins. Í ferðinni er ætlunin að rekja þessa miklu sögu á meðan ferðast er um skógi vaxin fjöll sem steypast niður í túrkísbláan sjó, græna dali í fullum skrúða, stórfengleg gljúfur og falleg sveitaþorp. Sögufrægir staðir verða sóttir heim, þar á meðal Meteóra, Delfí, Aþena og Akrópólis, Mýkena, Epídárus og Ólympía, en einnig verður farið á staði sem þekktari eru fyrir náttúrufegurð, eins og Pelíonskagann og út í eyjuna Lefkada. 
 

 
      

Sumar 5 - Útivist við Achensee


21. – 28. júní 2012
Fararstjóri: Steinunn H. Hannesdóttir
 

Dalurinn Achental er umlukinn tignarlegum fjöllum á nánast alla vegu og er þekktur fyrir einstaka náttúrufegurð. Í þessari ferð er áhersla lögð á að njóta útivistar á þessu yndislega alpasvæði. Við munum gista á hóteli í bænum Pertisau, eins þriggja bæja við Achensee vatnið. Þaðan er stórglæsilegt útsýni yfir vatnið, dalinn og fjöllin allt í kring, en vatnið og dalurinn mynda mörkin á milli Karwendel fjallgarðsins til vesturs og Brandenberg Alpanna til austurs. Þetta umhverfi býður upp á fjölbreytta útivistarmöguleika og hreyfingu. Byrjað verður hvern dag á léttri leikfimi og teygjum við allra hæfi. Áhugaverðar gönguferðir munu skipa mikilvægan sess en einnig verður kennd stafganga sem eykur styrk í efri hluta líkamans meira en hefðbundin ganga. Til að ná meiri yfirferð verður farið í hjólaferðir um svæðið og við hótelið verður síðan boðið upp á vatnsleikfimi svo eitthvað sé nefnt. Meðal staða sem verða skoðaðir er Gramai-Alm þjóðgarðurinn í Karwendel fjöllunum sem er í 1263 m hæð, en þar er tilvalið að fá sér léttan hádegisverð og skoða osta- og pylsusel frá 16. öld. Þessi ferð hentar öllum sem vilja njóta hressandi útvistar í einstöku umhverfi!
 



Sumar 6 - Fegurð landsins fjalla


26. júlí – 6. ágúst 2012
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
 

Tign svissnesku og austurrísku Alpanna hrífa okkur í glæsilegri ferð um stórbrotið landslag, þar sem farið verður m.a. með Bernina-Express lestinni yfir svissnesku Alpana og endað við Comovatn. Flogið til München og þaðan ekið til Kitzbühel í Tíról, eins þekktasta vetraríþróttabæjar Austurríkis. Við berjum Krimmlerfossana í Salzachdalnum milli háu Tauernfjallanna og Kitzbühleralpanna augum og förum til hins fagra Mayerhofen í Zillerdal. Komum einnig til Fulpmes í Stubaidalnum, sem liggur í 937 m hæð. Þaðan förum við í gufulest frá Jenbach að Achensee og til Gramai-Alm, þjóðgarðs Karwendel-fjallanna sem er í 1263 m hæð. Förum líka í ævintýralega ferð upp á Stubaier-jökul með kláfi, en þetta er stærsta jöklaskíðasvæði landsins í 3210 m hæð. Áfram haldið til Ischgl í 1377 m hæð í Paznaundal við Silvretta skíðasvæðið. Farið um Silvretta-Hochalpenstraße, til Galtür að Silvretta stöðuvatninu, til St. Anton við Arlberg í Lechtaler-Ölpunum og til Lech og Zürs, sem eru heimsþekktir skíðabæir. Ökum svo til St. Moritz í Sviss, þar sem Bernina Express lestin bíður okkar og förum stórfenglega ferð um svissnesku Alpana til Tirano á Ítalíu. Þaðan haldið að Comovatni, til Cadenabbia, lítils þorps við vatnið. Siglum yfir til Bellagio, yndislegs bæjar úti á tanga vatnsins og njótum þess að vera við hið töfrandi Comovatn.
 


    

Sumar 7 - Íslendingarslóðir í Kanada



2. – 15. ágúst 2012
Fararstjórar: Margrét Björgvinsdóttir & Ragnheiður Kjærnested
 

Við fetum í fótspor Íslendinga sem fluttu forðum daga vestur til Ameríku í von um betra líf í nýjum heimi. Aðaltilgangur ferðarinnar er að kynnast sögu og menningu landnemanna og lífsháttum afkomenda þeirra eins og þeir eru í dag. Auk þess heimsækjum við áhugaverða ferðamannastaði í Minnesota, Norður-Dakóta og Manitoba. Flogið verður til Minneapolis og gist þar eina nótt áður en haldið er til borgarinnar Grand Forks í Norður-Dakóta. Þaðan verður ekið um blómlegar sveitir Vestur-Íslendinga og heilum degi varið á árlegri þriggja daga hátíð þeirra í Mountain. Næsti áfangastaður er Winnipeg, þar sem gist verður í fimm nætur. Í borginni búa fjölmargir landar okkar og þar er margt að sjá sem tengist yfir 100 ára búsetu þeirra í borginni. Við ferðumst um Nýja Ísland og verða staðir sem tengjast lífi og störfum í sveitum og kaupstöðum þess svæðis heimsóttir. Íslendingadagurinn á Gimli er ógleymanlegur þeim sem taka þátt í þeim hátíðahöldum. Frá Winnipeg verður ekið í suðausturátt og gist tvær nætur í borginni Duluth, fallegri borg sem stendur í hæðunum við Lake Superior. Í lok ferðarinnar verður gist í tvær nætur í Minneapolis og farið í skoðunarferðir um borgina fótgangandi og í rútu. Í ferðinni gefast ótal tækifæri til að hitta fólk af íslenskum ættum.
 

  
    

Sumar 8 - Hjólað & siglt


28. júlí – 4. ágúst 2012
Fararstjóri: Sverrir Gíslason
 

Við kynnum hér glæsilega 8 daga hjólaferð og siglingu þar sem árnar Neckar og Rín munu leika aðalhlutverk. Flogið verður til Frankfurt en þaðan ökum við sem leið liggur til Bad Wimpfen, þar sem fljótaskipið„MS Patria“ tekur á móti okkur. Skipið býður uppá fjölmörg þægindi, má þar nefna veitingahús sem býður gestum uppá góðan og vel útilátinn kvöldverð ásamt gestastofu með litlum bar. Sóldekk er yfirbyggt, að hluta með sætum og reiðhjólastöndum. Allar káetur eru með loftkælingu og sérbaðherbergi. Þegar við höfum notið morgunverðar dag hvern, þá hjólum við um undurfagurt landslag tveggja hrífandi fljótasvæða, þar sem við skoðum menningarperlur, kirkjur, hallir og vínekrur. Heidelberg, Mainz og Koblenz eru borgir sem þetta fallega svæði hefur m.a. uppá að bjóða. Hjólað verður á vel byggðum hjólastígum þar sem farið verður í skoðunarferðir sem tryggja ógleymanlegt frí. Fyrir þá sem ekki hafa áhuga á að hjóla daglega er yndislegt að dvelja um borð og njóta landslagsins sem líður hjá. Það má með sanni segja að hér er um að ræða spennandi nýjung sem vert er að skoða!
 


   

Sumar 9 - Blómálfar og vatnadísir



2.  – 9. ágúst 2012
Fararstjóri: Þórhallur Vilhálmsson
 

Bodensee telst með fallegustu vötnum Evrópu og á landamæri sín að Þýskalandi, Austurríki og Sviss. Þessi töfrandi ferð sem hefst á flugi til München, þaðan sem haldið verður til Füssen, en í námunda við bæinn eru hallirnar Neuschwanstein og Hohenschwangau, og gistum við þar í eina nótt. Síðan verður ekið til Friedrichshafen við Bodensee þar sem gist verður í 4 nætur á hóteli alveg við vatnið. Farið verður í skemmtilegar skoðunarferðir, t.d siglt með ferju frá Meersburg yfir til Konstanz, stærstu borgar við vatnið, þaðan ekið að blómaeyjunni Mainau, en heiðurinn að þessum stórglæsilega lystigarði á Bernadotte greifi, meðlimur sænsku konungsfjölskyldunnar. Ekið inn í Sviss til Urnäsch við Säntis fjall, þar sem hægt er að komast upp í 2502 m hæð með kláfi þar sem stórkostlegt útsýni er yfir til 6 landa, en þetta telst með fallegustu náttúrusvæðum Evrópu. Komið til Lindau sem er mjög heillandi bær og sá stærsti við vatnið. Ferðin endar í þriðju elstu borg Þýskalands, Augsburg þar sem gist verður í 2 nætur, m.a. skoðum við fyrstu verkamannabústaði í heimi, sem Fugger kaupmannaættin reisti á 15. öld og enn er búið í, en leigan hefur ekki hækkað síðan þá!
 


 
 

Sumar 10 - Kastalar & klingjandi kristall



4.  – 16. ágúst 2012
Fararstjóri: Pavel Manásek
 

Kastalar, rómantík og fjallafegurð eru lýsandi fyrir þessa sumarferð okkar til Tékklands og Austurríkis. Ferðin hefst með flugi til München. Haldið er til Český Krumlov í Tékklandi þar sem gist er í 2 nætur og í skoðunarferð um bæinn heimsækjum við m.a. samnefnda höll. Eftir það verður gist 3 nætur í gullborginni Prag í Tékklandi, einni af fegurstu borgum Evrópu. Á leiðinni þangað verður hin glæsilega Hluboká höll skoðuð og siglt á Zvikova vatni. Förum jafnframt í skoðunarferð um Prag og heimsækjum m.a. Hradčany-kastala. Frá Prag höldum við til smábæjarins Luhačovice í Morova þar sem gist er í 4 nætur. Í bænum eru stærstu og elstu heilsulindir Morava en á leiðinni þangað verður stoppað í Třebíč. Þar er áhugaverðasta gyðingahverfi landsins sem skráð er á heimsminjaskrá UNESCO. Frá Luhačovice verður farið aftur í aldir til bæjarins Modrá þar sem er mjög áhugavert byggðar -og fornminjasafn. Þaðan förum við til bæjarins Velehrad og síðan til Uherske Hradiste, fallegs miðaldabæjar en þar væri jafnframt hægt að fara í vínsmökkun. Frá Luhačovice verður ekið til Kitzbühel í Tíról, eins þekktasta vetraríþróttabæjar Austurríkis þar sem gist verður í 3 nætur. Á leiðinni þangað verður stoppað í Dürnstein í Wachau vínhéraðinu, sem er með fallegustu landsvæðum við Dóná árfarveginn í Austurríki. Mikil upplifun er að taka kláf upp á Kitzbüheler Horn sem er í 1.998 m hæð.
 


 
 

Sumar 11 - Malinska Rívíeran


6.  – 18. ágúst 2012
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
 

Ævintýraferð um eyjaperlur Kvarner-víkur í Króatíu, en Krk eyjan og Dalmatíuströndin taka á móti okkur í allri sinni dýrð. Ferðin hefst á flugi til Mílanó og gistum þar fyrstu nóttina. Höldum áfram inn til Króatíu, nánar tiltekið til hinnar fögru eyju Krk, í norðurhluta Kvarner-víkur og gistum í 6 nætur í Malinska, vinsælum ferðamannabæ á eyjunni. Þaðan verður farið í skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. ökum við um Krk og siglum yfir til eyjunnar Cres, sem er ásamt Krk stærsta eyja Adríahafsins, en Cres er tengd við eyjuna Lošinj, sem er blóma- og furuparadís króatísku eyjanna. Heimsækjum Hum, fámennasta bæjarfélag í heimi, aðeins með 23 íbúum og borðum saman hádegisverð hjá vínbónda í Pazin. Eftir yndislega daga ökum við suður meðfram Dalmatíuströndinni til Biograd og gistum þar næstu 4 nætur, umvafin náttúruperlum Dalmatíustrandarinnar. Þaðan verður farið til Split, þeirrar sögufrægu borgar sem telst með fallegustu borgum landsins. Einnig skoðum við Krka þjóðgarðinn og hina frægu Krka fossa með sinni ólýsanlegu náttúrufegurð og borgina Zadar. Eftir yndislega daga og afslöppun í Króatíu verður ekið frá Biograd til Vicenza á Ítalíu og gistum þar síðustu nóttina.
 


  

Sumar 12 - Leyndar perlur Austur-Þýskalands



8.  – 18. ágúst 2012
Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir
 

Áhugaverð ferð með skírskotun til sögunnar, í fylgd fararstjóra sem bjó í Austur-Þýskalandi áður en múrinn féll. Flogið til Frankfurt og ekið til Eisenach, fæðingarborgar bæði Martins Luthers og Johanns Sebastians Bachs. Þar gistum við í 2 nætur og förum m.a. í skoðunarferð um borgina. Þaðan verður ekið til Leipzig sem Goethe kallaði „litlu París“. Gist í hjarta Leipzig í 4 nætur og farið í skoðunarferð um borgina, en miðbærinn er einstaklega fallegur. Á leiðinni þangað verður komið til borgarinnar Weimar sem skipar stóran sess í þýskri sögu en þar var stjórnarskrá Weimarlýðveldisins undirrituð. Frá Leipzig er farið í skoðunarferð í þjóðgarðinn Sächsische Schweiz eða „demantinn við Saxelfi“. Þjóðgarðurinn hefur í gegnum aldirnar verið vinsæll viðkomustaður landslagsmálara, sem segir kannski það sem segja þarf. Förum einnig til Dresden sem þykir ein fallegasta borg landsins og er hún þekkt fyrir listasöfn, hallir og Semper-óperuna. Eftir ánægjulega daga í Leipzig er haldið til Berlínar og gist í 3 nætur og farið í áhugaverða skoðunarferð um höfuðborgina sem er einstaklega lífleg og skemmtileg. Við eigum síðan frjálsan dag áður en við kveðjum borgina og ökum til barokkborgarinnar Fulda þar sem gist verður síðustu nóttina. 
 

 

Sumar 13 - Klettafjöllin í Kanada


18. ágúst - 1. september 2012
Fararstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson
 

Hin stórbrotnu Klettafjöll skarta sínu fegursta á þessum árstíma og taka á móti okkur með fjölbreyttu dýra- og plöntulífi, ásamt áhugaverðum áfangastöðum og tignarlegum þjóðgörðum. Flogið til Seattle og síðan ekið til Vancouver þar sem gist verður í þrjár nætur. Eftir skoðunarferð og rólegan dag í Vancouver er ekið til Kamloops þar sem gist er í eina nótt en á leiðinni þangað verður gljúfrið „Hell’s Gate“ skoðað. Ekið áfram yfir Klettafjöllin til fjallabæjarins Jasper þar sem gist er í eina nótt. Eftir heimsókn í þjóðgarðinn Jasper er haldið til Markerville þar sem heimili Klettafjallaskáldsins Stephans G. Stephanssonar verður skoðað og síðan gist í 2 nætur í fræga skíða- og vetrarólympíubænum Calgary. Við eigum rólegan dag í Calgary og ökum svo til fjallabæjarins Banff þar sem hægt er að taka kláf upp á fjallið Sulphur Mountain og njóta stórkostlegs útsýnis yfir fjöllin. Gist í Banff í tvær nætur áður en ferðin heldur áfram að einu fallegasta fjallavatni veraldar, Louise-vatni. Gistum í eina nótt í Golden og ökum svo áfram yfir Roger’s Pass, að Okanagan vatni, til Kelowna. Gist í 2 nætur í Kelowna og eftir ánægjulega daga þar er ekið eftir Okanagan-dalnum í áttina til Seattle þar sem við dveljum síðustu nóttina. Endum ferðina á skoðunarferð í stórborginni áður en haldið er heim á leið.
 

 

Sumar 14 - Albanía & Króatía


18. ágúst - 1. september 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
 

Austurlenskur blær, strandperlur, hefðir, minjar og ólýsanleg náttúrufegurð hrífa okkur í glæsilegri ferð til Albaníu og á Dalmatíuskagann í Króatíu. Ferðin hefst á flugi til Mílanó og gist fyrstu nóttina í Parma. Siglt frá Ancona og yfir til Durrës í Albaníu og gist við baðströnd Durrës í 4 nætur. Spennandi ferðir á dagskrá, t.d. um Durrës, til Tirana, höfuðborgar Albaníu sem er að hálfu leyti austurlensk og skemmtileg með sínum litríku húsum. Tökum kláf upp á fjallið Dajti í 1050 m hæð, þar sem einn aðalþjóðgarð landsins er að finna.  Förum í skoðunarferð til Vlora, en um 1912 var þingið kallað þar saman og Albanía lýsti yfir sjálfstæði. Skoðum fornminjar Apollonia, á einu mesta fornminjasvæði landsins. Kveðjum Albaníu og á leið okkar til Króatíu verður komið við í gamla virkisbænum Budva í Svartfjallalandi, sannkallaðri náttúruperlu landsins. Gistum í 3 nætur í Dubrovnik sem er glæsileg menningar- og listaborg í Króatíu. Komið til Cilipi þar sem hefðir Króatíu eru í hávegum hafðar. Gist í 3 nætur í Tucepi, yndislegum bæ við Makarska Rívíeruna. Á leiðinni þangað verður komið til Mostar í Bosníu, þar sem gamla brúin eða Stari Most er sögulegt tákn, en í Bosníustríðinu 1993 var henni eytt með spengjuárásum frá króatísku hliðinni, svo endurbyggð og frá árinu 2005 á heimsminjaskrá UNESCO og tákn fyrir friðsamlegri sambúð mismunandi þjóðflokka í Mostar. Skoðum UNESCO borgina Split sem er líkt og lifandi safn, m.a. með Diokletian höll. Siglum til Ancona og gistum eina nótt í Cremona á Ítalíu áður en flogið verður heim á leið.
 


 

Sumar 15 - Trítlað um Keisarafjöllin



23.  – 30. ágúst 2012
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
 

Tíról í Austurríki er aðaláfangastaður okkar í þessari ferð. Mikil náttúrufegurð einkennir þetta svæði og er einstakt að dvelja hér á þessum árstíma. Eftir flug til München liggur leið okkar til þorpsins Walchsee við Walchsee vatnið sem er í 668 m hæð við rætur Keisarafjallanna. Þar gistum við í 7 nætur á glæsilegu 4* hóteli í austurrískum stíl þar sem boðið er upp á góðan og heilsusamlegan mat ásamt heilsulind með sundlaug. Ferðin verður byggð upp með skemmtilegu samblandi af léttum gönguferðum á vel merktum göngustígum ásamt því að kynnast stafgöngu, vatnsleikfimi og léttum teygjuæfingum. Fararstjóri mun trítla með hópnum í skipulögðum gönguferðum frá hótelinu ásamt því að skipuleggja sjálfur gönguferðir um þetta einstaklega fallega og áhugaverða svæði. Walchsee er einstaklega snotur, lítill bær og er staðsettur við fallegt vatn þar sem hægt er að sóla sig og baða á heitum dögum. 
 


  

Sumar 16 - Perlur Ungverjalands


25. ágúst  – 6. september 2012
Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir
 

Rómantík og fegurð svífur yfir vötnum í ferð okkar um Austurríki og við Balatonvatn í Ungverjalandi, sem er rómað fyrir fagrar strendur og líflega bæi. Þessi glæsilega ferð byrjar í Mílanó, þaðan svo ekið til Veróna, þar sem við gistum eina nótt, en á leiðinni þangað verður stoppað við suðurenda Gardavatns. Ekið að Faaker vatni í Kärnten í Austurríki og þar gist í 2 nætur og síðan ekið um Ossiacher vatn til Velden, sem er aðalbærinn við Wörthersee, stærsta alpavatn Evrópu. Því næst er komið að Balatonvatni í Ungverjalandi sem er einn eftirsóttasti ferðamannastaður landsins og gist í hinum blómlega og skemmtilega bæ Siófok í 7 nætur. Farið í skoðunarferðir t.d. til höfuðborgarinnar Búdapestar, einnar af glæsilegustu borgum í heimi, siglt á Balatonvatni yfir til Tihany, komið til Balatonfüred, eins þekktasta heilsu- og ferðamannabæjar við vatnið og tekið þátt í sveitabrúðkaupi. Ekið um ungversku „Puszta“ sléttuna suður til Kecskemet og alþjóðlegt keramíkstúdíó heimsótt, þar sem Jóna Guðvarðardóttir tekur á móti okkur. Eftir það verður ekið til Lajosmizse á Tanyacsárda hestabúgarðinn, farið á hestasýningu, en þar eru þeir frægir fyrir tamningar sínar, og fáum okkur léttan hádegisverð. Einnig komið til bæjarins Hévíz, sem er þekktur fyrir fornan gýg og heimsækjum vínbónda. Síðustu 2 næturnar dveljum við í Deggendorf í Þýskalandi sem oft er nefndur „hliðið inn í Bæjaraskóg“. 
 


 

Sumar 17 - Trítlað um töfraheim Tíróls



30. ágúst - 6. september 2012
Fararstjóri: Jón Hálfdanarson
 

Héraðið Tíról í Austurríki er þekktast fyrir einstaka fjallafegurð, tírólabúninga og hatta, fjölbreyttan landbúnað þar sem bændur reka ennþá í sel og ekki má gleyma öllum útivistarmöguleikunum. Ferðinni er að þessu sinni heitið til bæjarins Gerlos í fjallaríki Kitzbühel og Zillertaler Alpanna. Í þessum áhrifamikla fjallaheimi Tíról teygja sig hvorki meira né minna en 5 hliðardalir með ótal gönguleiðum en ferðin samanstendur af blöndu léttra gönguferða sem henta vel fyrir alla þá sem njóta þess að stunda útivist. Eftir flug til München er ekið sem leið liggur til Gerlos en bærinn liggur í 1250 m hæð í Zillerdalnum, þar sem sumarnæturnar eru ferskar og dagarnir hæfilega heitir. Gist verður á rómantísku 3* fjallahóteli í 7 nætur. Næstu daga gefst göngugörpum tækifæri til að stunda hressandi hreyfingu og fyllast krafti og ánægju í sannkölluðum töfrum Tíróls. Trítlað verður eftir fjölbreyttum gönguslóðum þessa einstaka alpasvæðis í skipulögðum ferðum frá hótelinu og inn á milli stundaðar léttar æfingar og teygjur. Flestar skíðalyftur og kláfar svæðisins eru opnar yfir sumartímann, sem eykur möguleikann á því að haga dagleiðunum eftir getu hvers og eins. Eftir ánægjulega útiveru er síðan upplagt að láta þreytuna líðu úr sér í heilsulind hótelsins. 
 


 

Sumar 18 - Pétursborg & Tallinn


1. - 8. september 2012
Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson
 

Spennandi ferð til hinnar stórfenglegu Pétursborgar sem var höfuðborg Rússlands á árunum 1712 – 1918 og hét um tíma Leníngrad, til minningar um Lenín og bar hún það nafn þar til árið 1991 eða þar til eftir fall Sovétríkjanna. Pétursborg er án efa miðstöð menningar og lista og hafa bókmenntir, tónlist og leiklist hennar mikla þýðingu um heim allan. Margir telja borgina eina þeirra fallegustu í heimi, en miðbær hennar er til að mynda á heimsminjaskrá UNESCO. Flogið verður til Helsinki og þaðan haldið til Pétursborgar. Farið verður í áhugaverðar skoðunarferðir um borgina þar sem við kynnumst sögu og menningu landsins. Skoðum m.a. virki heilags Péturs og Páls, dómkirkju heilags Ísaks og Vetrarhöllina. Undir lok ferðar verður farið til Tallinn, höfuðborgar Eistlands, en borgin er ein best varðveitta miðaldaborg í N-Evrópu. Hér er því margt sem gleður augað og margir hápunktar í þessari einu og sömu ferð! 
 


 

Sumar 19 - Sardinía & Korsíka


1. - 13. september 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
 

Í þessari glæsilegu eyjaferð sem hefst í Mílanó er boðið upp á sumarævintýri á Korsíku og Sardiníu, gróðursæld og stórbrotna fegurð. Höldum til Lucca í Toskana héraðinu og gistum þar í eina nótt áður en við siglum frá Livorno yfir á frönsku eyjuna Korsíku til Bastía. Stefnum á höfuðborgina Ajaccio, fæðingarborg Napóleons Bonaparte, þar sem íbúar fullyrða að þeir eigi fallegasta flóa í heimi. Gistum þar í 3 nætur. Farið verður í ævintýraferðir m.a. um Les Calanche strandhéraðið sem er í yfir 350 m hæð yfir sjó, til Porto við fallegustu vík Korsíku og sannur töfraheimur í rauða Spelunca-gilinu með 2000 m háum fjöllum. Haldið suður til Bonifacio sem er ein af perlum Miðjarðarhafsins en  borgin trónir uppi á 80 m háum kalksteinskletti. Önnur ævintýraferð verður farin er við siglum yfir á ítölsku eyjuna Sardiníu, og gistum í 3 nætur hjá Porto Cervo. Þaðan er farið í siglingu á Maddalena eyju, sem er höfuðeyjan í Maddaleníska eyjaklasanum. Farið er til Porto Rotondo einnar af bæjarperlum Costa Smeralda strandar og upp í fjallaþorpið San Pantaleo, sem er þekkt sem listamannaþorp. Síðan siglt frá Sardiníu yfir til Korsíku, haldið til Bastía sem er töfrandi borg og gist þar í 2 nætur. Þaðan er ekið um Capa Cors tangann sem er annálaður fyrir fegurð. Siglt til Livorno á Ítalíu, gist í eina nótt í nágrenni Bologna á leiðinni til Seefeld í Tíról sem er með aðalferðamannabæjum Tíróls og gist þar í 2 nætur. Á leiðinni þangað verður stoppað í Riva del Garda við Gardavatn og farið á skómarkað í Dro. 
 











Flýtileiðir




Skipta um leturstærð