Haust 7 Haustlitir í Svartaskógi

 

7. – 14. október 2012 
Fararstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson

 
Vínakrar, kastalar og skógar er nokkuð sem við kynnumst í þessari skemmtilegu ferð til Þýskalands, Frakklands og Sviss. Flogið verður til Frankfurt og síðan ekið inn í Svartaskóg til Oberkirch, þar sem við gistum í 7 nætur. Förum í spennandi og áhugaverðar skoðunarferðir, t.d. sækjum við Freiburg heim, en hún hefur að geyma eitt af meistaraverkum gotneska tímans. Síðan verður ekið um Klukkuveginn í Svartaskógi og komið við á verkstæði þar sem gauksklukkur eru búnar til, komum til Nancy í Frakklandi, eina af barokkborgum landsins, Strasbourg, höfuðborgar Alsace héraðsins þar sem hægt er að fara í siglingu á ánni Ill eða ganga um Litla Frakkland, eitt elsta hverfi borgarinnar. Einnig verður ekið inn til Sviss, nánar tiltekið til Basel sem er mjög lífleg og skemmtileg borg, og oft sögð með fegurstu borgum Evrópu. Ekið um „Vínslóðina“ í Alsace þar sem við þræðum ótal falleg smáþorp og byrjum á því að stoppa í Obernai sem er lítill og skemmtilegur bær, ekið um Barr, frá Ribeauvillé til Riquewihr sem er ein af perlum héraðsins, en þar væri upplagt að enda á vínsmökkun. Eftir skemmtilega ferð verður flogið heim frá Frankfurt. 
  

 

 

 

 
7. október              Flug til Frankfurt og ekið til Oberkirch
Brottför frá Keflavík kl. 7.25. Mæting í Leifsstöð um 2 klst. fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma (+ 2 klst.). Ekin verður falleg leið um Svartaskóg til Oberkirch sem er skemmtilegur lítill bær. Gist þar í 7 nætur.
 
8. október              Freiburg og Klukkuvegurinn
Eftir morgunverð liggur leið okkar til Freiburgar, hliðið inn í suðurhluta Svartaskógar. Freiburg eða hin frjálsa borg er einnig borg skógarins, gotneskrar listar og víns. Eftir gott stopp í Freiburg ökum við hluta af Klukkuveginum, en þessi leið er aðallega þekkt fyrir frægar klukkuverslanir. Hér væri hægt að fara á gauksklukkuverkstæði til að sjá hvernig klukkurnar eru búnar til. 
 
9. október              Strasbourg
Í dag förum við í skoðunarferð um Strasbourg, höfuðborg Alsace héraðsins. Byrjum á því að fara í siglingu á ánni Ill sem rennur um borgina. Þetta er mjög skemmtileg sigling þar sem við sjáum glæsibyggingar og komum m.a. að Evrópubyggingunum svo eitthvað sé nefnt. Eftir það göngum við inn í gamla hlutann, með gömlum bindingsverkshúsum og að Münsterkirkjunni, stolti borgarbúa, en mjög merkilegt stjörnu- og sólúr er inni í kirkjunni. Eftir það verður frjáls tími til að fá sér hressingu og einnig gefst tækifæri til að ganga um listamannahverfið sem nefnist „Litla Frakkland“.
 
10. október              Nancy
Eftir góðan morgunverð, verður ekið til menningarborgarinnar Nancy, sem er höfuðborg Lotringen í Frakklandi, með um 102.000 íbúa. Yndisleg borg sem er gott dæmi um barokk-byggingarlist, en borgin er ein af háborgum landsins. Eftir skemmtilega skoðunarferð gefst frjáls tími til að fá sér hressingu og njóta borgarinnar á eigin vegum.
 
11. október              Frjáls dagur í Oberkirch
Frjáls dagur í Oberkirch, sem er lítill og skemmtilegur bær. Nú er hægt að taka því rólega, njóta þess að vera í þessu fagra umhverfi og rölta um bæinn.
 
12. október              Basel
Í dag er upplagt að fara yfir landamærin til Basel í Sviss. Þessi fjölskrúðuga menningar- og listaborg á sér mörg andlit og margar hliðar. Hrífandi gamlar byggingar og söfn en margir telja að miðbærinn sé einn sá fallegasti í Evrópu.
 
13. október              Vínslóðin til Riquewir
Nú verður ekið um „Vínslóðina“ í Alsace þar sem við þræðum ótal falleg smáþorp. Byrjum á því að stoppa í Obernai sem er yndislegur lítill bær og eftir það verður ekið um Barr, Ribeauvillé til Riquewihr, sem er ævintýrabær með gömlum bindingsverkshúsum, bæjarturni og jólabúðinni frægu. Svo eru það vínbændurnir með vínkjallarana sína í öðru hverju húsi. Upplagt væri að enda daginn á vínsmökkun saman áður en ekið verður heim á leið, um Markelsheim, Plobsheim og yfir til Oberkirch.
 
14. október              Heimferð
Nú kveðjum við Svartaskóg og Alsace héraðið eftir yndislega daga. Eftir morgunverð verður lagt af stað út á flugvöll og fljúgum við heim kl. 14.00. Lending er í Keflavík kl. 15.35 að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn. 
 


 
 
 
Verð: 157.800 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 19.900 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hóteli
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Sigling í Strasbourg ca. € 8 og vínsmökkun ca € 8. 
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð