Haust 6 Gardavatn - Feneyjar - Tíról

 
3. – 14. október 2010    UPPSELT!
Fararstjóri: Hlín Gunnarsdóttir

 
Gardavatn hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga til margra ára enda líkti Goethe staðnum við himnaríki og skyldi engan undra. Flogið verður til Frankfurt og gist fyrstu nóttina í Ulm. Þaðan verður ekið til Riva del Garda og gist í 5 nætur. Farið í siglingu á Gardavatni til Limone og í áhugaverðar skoðunarferðir, svo sem til Feneyja og Veróna. Áfram er haldið til Seefeld í Tíról, Austurríki, þar sem ríkir mikil náttúrufegurð. Gist í 3 nætur í Seefeld og síðan í 2 nætur í Würzburg í Þýskalandi í lokin. Þrátt fyrir mikið tjón í stríðinu skartar borgin enn gömlum byggingum. Farið verður á útimarkað, hádegisverður snæddur í kastala hjá vínbónda og margt fleira.

 

 

 

 
3. október    Flug til Frankfurt og ekið áfram til Ulm

Brottför frá Keflavík kl. 7.25. Mæting í Leifsstöð 2 klst. fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma (+ 2 klst. tímamismunur). Frá Frankfurt verður ekið til Ulm og gist þar fyrstu nóttina. 
 
4. október   Ekið til Riva del Garda á Ítalíu
Eftir morgunverð verður ekið suður á bóginn, yfir Brennerskarð og inn til Ítalíu um Suður-Tíról. Endað í bænum Riva del Garda við Gardavatn og gist þar næstu 5 nætur.
 
5. október  Skoðunarferð og frjáls dagur í Riva
Farið verður í skoðunarferð um Riva, en svo gefst frjáls tími til að skoða sig um í þessum snotra bæ, með sínum litlu götum, verslunum og mjög skemmtilegri strandlengju.
 
6. október  Dagsferð til Feneyja
Í dag verður lagt snemma af stað og farið til Feneyja. Borgin er engri lík með sínar 200 hallir við Canal Grande, en þessi þekkta siglingaleið liggur tæplega 4 kílómetra um borgina. Við skoðum Markúsartorgið og ekki má gleyma ævintýrahöllinni úr Þúsund og einni nótt, sem er í austrænum stíl og ein merkilegasta kirkjubygging veraldar. Frjáls tími gefst til að komast á söfn eða njóta mannlífsins. 
 
7. október   Sigling - Limone, Malcesine
Sigling á Gardavatni. Farið til Limone, sem er einn fallegasti bærinn við vatnið og áð þar í 2 klst. Síðan er siglt til Malcesine sem er mjög eftirsóttur ferðamannabær og stoppað í 3 klst. Þar verður hægt að komast á útimarkað eða upp á Monte Baldo fjallið, hæsta fjall við Gardavatn. Þaðan er ekið tilbaka á hótelið.
 
8. október  Dagsferð til Veróna
Í dag verður farið til Veróna, einnar fallegustu og elstu borgar á Norður-Ítalíu. Borg menningar og lista, en frægust er hún sem sögusvið leikrits Shakespeares um Rómeó og Júlíu. Þar er líka Arenan, sem er þriðja stærsta hringleikahús veraldar. 
 
9. október  Rovereto og Seefeld
Nú kveðjum við þennan fallega stað og höldum til Austurríkis. Á leiðinni verður komið við í Dro, þar sem er að finna stærstu skóverslun á Norður-Ítalíu, en þá verður farið í kastala fyrir ofan Rovereto. Við fáum stutta leiðsögn um kastalann og snæðum síðan léttan hádegisverð að hætti íbúanna í dalnum, með vínsmökkun í leiðinni. Ekið áfram yfir Brennerskarð til Seefeld sem er yndislegur bær í Tíról og gistum þar næstu 3 nætur.
 
10. október  Frjáls dagur
Rólegur dagur. Þessi fallegi bær kannaður og þeir sem vilja geta tekið kláf upp á fjall.
 
11. október  Innsbruck
Í dag verður ekið til hinnar fallegu borgar Innsbruck, höfuðstaðar Tíról. 
 
12. október  Würzburg
Nú kveðjum við Seefeld. Leggjum snemma af stað og ökum til Würzburg í Franken-vínhéraðinu í Þýskalandi og gistum þar í 2 nætur.
 
13. október  Dagur í Würzburg
Würzburg á sér langa sögu og er þar margt að skoða. Þetta er mjög falleg og lífleg borg sem varð fyrir miklum skemmdum í seinni heimsstyrjöldinni, en hefur verið byggð upp í sinni upprunalegu mynd. Það eru 85 kirkjur í borginni en aðeins um 130.000 íbúar. Farið verður í stutta skoðunarferð og síðan gefinn frjáls tími til að kanna borgina á eigin vegum, versla eða slaka á einu af kaffihúsum borgarinnar. 
 
14. október  Heimferð
Nú er komið að heimferð. Eftir morgunverð verður ekið til Frankfurt. Brottför þaðan kl. 14.00 og lending í Keflavík kl. 15.35 að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært milli daga eftir því sem þörf þykir þegar komið er á staðinn.
 
Sjá allar upplýsingar um verð og innifalið á næsta flipa hér fyrir ofan.

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð