29. september Flug til München og ekið að Bled-vatni
Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð um 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma ( + 2 klst. ) þaðan sem haldið verður rakleiðis að Bled-vatni í Slóveníu, með fegurstu perlum Alpanna, þar sem gist er 2 nætur.

30. september Eyjan Blejski otok og Bled kastalinn
Eftir morgunverð förum við í siglingu út í eyjuna Blejski otok þar sem fallega Maríukirkjan með frægu óskabjöllunni er. Síðan verður ekið upp að Bled kastalanum, miðaldakastala sem stendur í 139 m hæð á hamri við norðurbakka vatnsins, en þaðan er stórkostlegt útsýni yfir svæðið. Hann er talinn vera elsti kastali Slóveníu og er í dag eitt mesta aðdráttarafl landsins. Í dag gefst einnig frjáls tími til að taka því rólega og njóta fegurðarinnar.
1. október Rósahöfnin og Postojna dropasteinshellarnir
Nú verður ekið til Portorož í Slóveníu eða Rósahafnarinnar svokölluðu, þar sem gist verður í 6 nætur. Á leiðinni þangað verður komið til Postojna, en þar eru hinir víðfrægu dropasteinshellar. Þar er einnig mjög fallegt umhverfi með nokkrum minjagripaverslunum, veitingastöðum og kaffihúsum.
2. október Sigling til Piran og Isola
Í dag verður boðið upp á siglingu til Isola og Piran, sem má kalla sannkallaðar perlur Istríastrandarinnar. Byrjum á að sigla til Isola, en þar verður stoppað í um 1 klst. Ferðin
heldur áfram til Piran sem er yndislegur bær með margt áhugavert að skoða. Þar fæddist fiðluleikarinn og tónskáldið Tartini, en minnisvarði um hann stendur á hinu glæsilega Tartini-torgi. Eins er gaman að skoða Georgskirkjuna sem hefur eitt tignarlegasta kirkjustæði strandarinnar. Þarna er sérstaklega fallegt og gaman er að sigla að þessum bæjum.
3. október Frjáls dagur í Portorož
Frjáls dagur til að kanna umhverfið og einnig tilvalið að nýta sér góða aðstöðu hótelsins. Einnig er hægt að ganga yfir til Piran með ströndinni.
4. október Dagsferð til Króatíu – Rovinj, Limski og vínbóndi í Pazin
Króatía tekur á móti okkur í dag í allri sinni dýrð. Áður en við ökum til Rovinj, yndislegs listamannabæjar við Istríaströndina, verður stoppað við Limski skurðinn. Eftir það verður
ekið til Pazin og borðaður léttur hádegisverður hjá vínbónda, með dansi og söng.
5. október Hrastovlje og Koper
Eftir morgunverð verður ekið til Hrastovlje, lítils miðjarðarhafsþorps sem þekkt er fyrir kirkju heilagrar þrenningar í rómanískum stíl, byggða á 12. og 13. öld, en kirkjan er þekkt fyrir freskur sínar sem þekja innveggi kirkjunnar, en þó er hún aðallega þekkt fyrir „Dauðadansinn“ frá 15.öld. Á 16 öld voru virkisveggir um kirkjuna byggðir. Þaðan verður ekið til Koper, mjög fallegs bæjar og einu hafnarborgar Slóveníu. Þar er hægt að líta inn í nýtt verslunarhús.
6. október Portorož - Salzburg
Nú kveðjum við Portorož og ökum til fæðingarborgar Mozarts, Salzburg, þar sem gist verður í 3 nætur. Borgin er þekkt fyrir byggingar í barokkstíl og hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan árið 1996, en Salzburg er í hugum margra hin sannkallaða perla Austurríkis. Frá Portorož verður ekið um Trieste, Palmanova, Udine um Villach til Spittal an der Drau, en þar verður stoppað til að fá sér hádegishressingu.
7. október Arnarhreiðrið og Köningsee
Nú liggur leið okkar til Berchtesgaden þar sem Arnarhreiður Hitlers er. Bormann lét byggja það og færa honum að gjöf frá ríkinu á 50 ára afmæli hans, en Hitler sjálfur valdi tindinn Kehlstein (í 1.834 m hæð) sem byggingarstað. Á leiðinni til baka verður stoppað við Köningsee vatnið, sem þekkt er fyrir náttúrufegurð og er einn eftisóttasti ferðamannastaður Þýskalands
8. október Dagur í Salzburg
Við byrjum á að fara í skoðunarferð um borgina, skoðum Mirabellgarðinn og göngum eftir Getreidegasse sem er með elstu og þekktustu götum borgarinnar, en þar er mjög áhugavert Mozartsafn. Einnig förum við upp í kastalann Hohensalzburg, en þar var hluti kvikmyndarinnar Söngvaseiðs eða „Sound of Music“ tekinn upp. Stórkostlegt útsýni er þaðan yfir Salzburgerland og borgina.
9. október Heimferð
Eftir indæla og skemmtilega ferð verður ekið til München. Brottför þaðan kl. 14.05 og lending í Keflavík kl. 16.00 að staðartíma.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
Verð: 208.200 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 39.400 kr.

Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
Valfrjálst:
Sigling út í Blejski otok eyju ca. € 14, aðgangseyrir í Maríukirkjuna ca. € 3, Postojna dropasteinshellar ca. € 20, sigling til Piran og Isola ca. € 15, vínsmökkun og léttur hádegisverður í Pazin ca. € 13. Aðgangur Arnarhreiðrið ca. € 15.