Haust 5 Vínbændur & Kastalar

 

28. september - 5. október 2012 
Fararstjórar: Georg Kári Hilmarsson og Agnar Guðnason

 
Móseldalurinn er ægifagur, haustlitirnir skarta sínu fegursta og vínuppskerutíminn er hafinn. Flogið verður til Frankfurt og gist í 5 nætur hjá vínbændum í Leiwen við ána Mósel. Þaðan verður farið í áhugaverðar skoðunarferðir, t.d. til Bernkastel og Cochem, sem þykir einn fallegasti bær við ána. Þá verður komið til Idar-Oberstein sem frægur er fyrir skartgripagerð, mjög skemmtilegt eðalsteinasafn og ekki má gleyma hellakirkjunni frægu sem er byggð inni í kletti. Einnig verður komið til elstu borgar Þýskalands, Trier, sem hefur að geyma miklar fornminjar frá tímum Rómverja. Margt skemmtilegt verður á döfinni þessa daga, t.d. ratleikur þar sem leitað verður að gómsætum Móselvínum. Komið verður til Rüdesheim, eins vinsælasta ferðamannabæjar við ána Rín, á leið okkar til Wiesbaden, þar sem gist verður á vel staðsettu miðbæjarhóteli síðustu 2 næturnar. Flogið heim frá Frankfurt.

 

 

 

 
28. september              Flug til Frankfurt og ekið áfram til Leiwen
Brottför frá Keflavík kl. 7.25. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma (+2 klst). Þaðan verður ekið til Leiwen í Móseldalnum þar sem gist verður í 5 nætur hjá vínbændum. Hópnum verður skipt niður á nokkur hús og eru öll herbergin með snyrtingu, baði eða sturtu. Morgunverður er hjá vínbændum en kvöldverður á veitingastöðum bæjarins og hjá Klaus Lex vínbónda.
 
29. september              Bernkastel – Cochem
Eftir morgunverð verður komið við í Bernkastel sem er einn fjölsóttasti ferðamannastaður Þýskalands og gengur undir nafninu „perla Móseldalsins“. Eftir það verður ekið til Cochem sem er með fallegri bæjum við ána. Kastalinn setur mikinn svip á staðinn og er hægt að ganga upp að kastalanum eða taka vagna sem ganga upp frá ánni. Þar er einstaklega fagurt útsýni yfir bæinn og ána Mósel.
 
30. september              Hvíldardagur í Leiwen og vínsmökkun
Nú er upprunninn hvíldardagur og við njótum þess. Eftir hádegi þegar allir eru búnir að fá sér hressingu verður boðið upp á vínsmökkun í formi ratleiks í vínhæðunum, þar sem við leitum að flöskum sem innihalda gómsæt Mósel vín. Við stoppum nokkrum sinnum á leiðinni upp á hæðina, en þar stendur falleg kapella þar sem vínbændur biðja guð um góða uppskeru í gæðavín. Ef veðrið er gott þá dveljum við smá stund þarna efst upp á vínhæðinni. Á göngunni og við kapelluna fáum við ítarlegar upplýsingar um störf vínbændanna og fróðleik um vínframleiðslu. Þeir sem ekki treysta sér til að ganga upp vínhæðirnar geta fengið að sitja í bílnum hjá Jóhanni Lex sem annast flutning á víninu á felustaðina. Kl. 19.00 um kvöldið mætum við í grillveislu hjá Klaus, dönsum og tökum lagið (rétt er að geta þess að Klaus er sonur Jóhanns og Lenu).
 
1. október              Idar-Oberstein
Farið verður í dagsferð til eðalsteinabæjarins Idar-Oberstein. Yfir þessum heillandi bæ gnæfir sérstök kirkja og er þess virði að ganga upp allar tröppurnar sem eru rétt rúmlega 100 talsins til að skoða hana og fá útsýni yfir bæinn. Tækifæri gefst til að kynnast framleiðslu og skoða fjölbreytt úrval af skartgripum, en mjög áhugavert eðalsteinasafn er í bænum og má segja að bærinn sé þekktur fyrir eðalsteinana.
 
2. október              Dagur í Trier
Dagurinn hefst á skoðunarferð um Trier sem er ein af stærstu borgum við Mósel og elsta borg Þýskalands. Þar er margt að sjá og fornar minjar frá tímum Rómverja eru meðal þess sem verður skoðað. Eftir það gefst frjáls tími til að skoða sig betur um og jafnvel líta inn til kaupmannanna, en borgin er fræg fyrir að vera ein af aðalverslunarborgum landsins.
 
3. október              Dagur í Rínardalnum
Nú kveðjum við Leiwen eftir yndislega daga í Móseldalnum. Frá Leiwen ökum við til Bingen við Rín en þar tökum við ferjuna yfir ána til Rüdesheim sem er einn vinsælasti ferðamannastaðurinn við Rín. Mjög gaman er að fara með svifkláfi yfir vínhæðirnar að minnisvarða sem byggður var seint á 19. öld til minningar um fyrri sameiningu Þýsklands. Seinni partinn verður ekið áfram til Wiesbaden þar sem gist verður í 2 nætur á hóteli alveg við göngugötuna.
 
4. október              Dagur í Wiesbaden
Eftir góðan morgunverð verður farið í skoðunarferð um borgina. Wiesbaden er höfuðborg Hessen með glæsilegum byggingum frá nýliðnum öldum, höllum og herrasetrum. Borgin er jafnframt þekkt fyrir heilsuböð sín og einnig hið glæsilega spilavíti sem staðsett er í miðbænum. Eftir hádegi gefst frjáls tími til að ganga um miðbæinn, kíkja í búðir eða setjast á kaffihús og fylgjast með iðandi mannlífinu.
 
5. október              Heimferð
Nú er komið að heimferð. Eftir morgunverð verður ekið til Frankfurt. Brottför þaðan er kl. 14.00 og lending í Keflavík kl. 15.35 að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn. 
 


 
 
 
Verð: 144.600 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 10.600 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Morgunverður hjá vínbændum og á hótelinu í Wiesbaden
• 2 kvöldverðir hjá Klaus Lex og 3 kvöldverðir á veitingastöðum í Leiwen
• 2 kvöldverðir á veitingastöðum í Wiesbaden
• Vínsmökkun í Leiwen
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Sigling frá Bingen til Rüdesheim ca. € 5 og svifkláfur í Rüdesheim ca. € 7.
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð