Haust 4 Gardavatn & Feneyjar

 

25. september - 6. október 2012     UPPSELT!    
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir

 
Gardavatn hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga til margra ára, enda líkti Goethe staðnum við himnaríki og skyldi engan undra. Eftir flug til München byrjum við á því að fá okkur hressingu í miðbæ München, en þaðan verður ekið til Kufstein í Tíról sem er mjög líflegur og skemmtilegur bær þar sem gist verður í 2 nætur. Þaðan verður ekið til Riva del Garda sem er einn vinsælasti ferðamannabærinn við Gardavatn og gist þar í 6 nætur. Farið í áhugaverðar skoðunarferðir, m.a í siglingu á Gardavatni til Limone og Malcesine sem eru perlur Garda, til Feneyja, drottningu Adríahafsins, Veróna elstu borg Norður-Ítalíu og Trento. Eftir ljúfa daga verður haldið til Seefeld í Tíról, Austurríki, þar sem ríkir mikil náttúrufegurð inn á milli fjallanna þar sem gist verður síðustu 3 næturnar. Þaðan verður farið til Innsbruck, höfuðstaðs Tíróls, með heillandi miðaldarmiðbæ, komið við í bænum Mittenwald, sem á sér engan líkan, með sínum myndskreyttu litlu húsum, bæjarlæk og verslunum. Ýmsar skemmtilegar uppákomur, farið verður á útimarkað, hádegisverður snæddur í kastala hjá vínbónda og margt fleira.
 
Athugið að komin er inn ný ferð til Gardavatns og Feneyja 6. - 16. október - skoða ferð hér!
 
 
 

 

 

 

 
25. september              Flug til München – Kufstein
Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð um 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05. að staðartíma (+ 2 klst. tímamismunur). Byrjum á því að fara inn í München og fá okkur hressingu og líta á mannlíf borgarbúa. Þaðan verður síðan ekið inn til Austurríkis, til Kufstein í Tíról og gist í 2 nætur á hóteli í miðbænum.
 
26. september              Dagur í Kufstein
Eftir morgunverð verður farið í skemmtilega skoðunarferð um Kufstein og upp í kastalann, en þaðan er útsýnið yfir bæinn og nærliggjandi sveitir ægifagurt. Það er einnig hægt að heyra í orgelinu sem er í turni kastalans. Alltaf í hádeginu og á kvöldin er spilað á orgelið fyrir neðan kastalann þar sem spilaborðið er, en pípur orgelsins eru upp í turni og bærinn er einmitt þekktur fyrir þetta fallega orgel. 
 
27. september              Ekið til Riva del Garda á Ítalíu
Riva del Garda er næsti áfangastaður okkar. Ökum frá Kufstein, suður á bóginn, yfir Brennerskarð og inn til Ítalíu um Suður-Tíról. Endað í bænum Riva del Garda við Gardavatn sem er einn vinsælasti ferðamannabærinn við vatnið og gist þar næstu 6 nætur.
 
28. september              Skoðunarferð og frjáls dagur í Riva
Farið verður í skoðunarferð um Riva, en svo gefst frjáls tími til að skoða sig um í þessum
snotra bæ, með sínum litlu götum, verslunum og mjög skemmtilegri strandlengju.
 
29. september              Dagsferð til Veróna
Í dag verður farið til Veróna, einnar fallegustu og elstu borgar á Norður-Ítalíu. Borg menningar og lista, en frægust er hún sem sögusvið leikrits Shakespeares um Rómeó og Júlíu. Þar er líka Arenan, sem er þriðja stærsta hringleikahús veraldar. Farið í skoðunarferð um borgina og auðvitað gefst frjáls tími þar á eftir til að kanna líf bæjarbúa á eigin vegum.
 
30. september              Dagsferð til Feneyja
Við leggjum af stað snemma í dag og ökum til Feneyja. Borgin er engri lík með yfir 200 hallir við Canal Grande, en þessi þekkta siglingaleið liggur tæplega 4 km um borgina. Við skoðum Markúsartorgið og ekki má gleyma ævintýrahöllinni úr Þúsund og einni nótt, sem er í austrænum stíl og ein merkilegasta kirkjubygging veraldar. Frjáls tími gefst til að komast á söfn eða njóta mannlífsins.
 
1. október              Trento og Rovereto
Trento er höfuðborg Trento héraðsins, blær borgarinnar er heillandi, fagurskreytt hús með freskum, Buonconsiglio biskupshöllinni frá 13. öld og grafhýsi Cesare Battisti, sem gnæfir yfir borginni upp á kletti. Farið verður í stutta skoðunarferð um borgina, en síðan farið í kastala fyrir ofan Rovereto. Við fáum stutta leiðsögn um kastalann og snæðum svo léttan hádegisverð að hætti íbúanna í dalnum, með vínsmökkun í leiðinni.
 
2. október              Sigling - Limone, Malcesine
Sigling á Gardavatni. Farið verður til Limone, eins fallegasta bæjarins við vatnið og stoppað þar í 2 klst. Síðan siglt til Malcesine sem er mjög eftirsóttur ferðamannabær og stoppað í 3 klst. Í Malcesine verður hægt að komast á útimarkað eða upp á Monte Baldo fjallið, hæsta fjall við Gardavatn. Þaðan er ekið tilbaka á hótelið.
 
3. október              Brennerskarð og Seefeld
Nú kveðjum við þennan fallega stað og höldum til Austurríkis, yfir Brennerskarð til Seefeld, yndislegs bæjar í Tíról og gistum þar næstu 3 nætur. Á leiðinni verður komið við í Dro, þar sem er að finna stærstu skóverslun á Norður-Ítalíu. Ferðin heldur áfram in Sarca dalinn, þar sem fagurt útsýni er á Brenta fjallgarðinn, eða Brenta Dólómítana, ekið hjá Toblino vatni, komið inn í Adige dalinn, ekið til Brixen í Eisack dalnum, mjög blómlegs og skemmtilegs bæjar, þar sem stoppað verður áður en haldið er til Seefeld.
 
4. október              Frjáls dagur í Seefeld
Í dag tökum við því frekar rólega, byrjum á góðum morgunverði og síðan verður stutt skoðunarferð um Seefeld sem er með eftirsóttustu ferðamannabæjum Tíróls. Seefeld er umkringdur fjöllum, en hér áður var þetta mikið vatnasvæði og ber nafn bæjarins það með sér. Eftir stutta göngu með fararstjóranum er frjáls tími það sem eftir er dags. Hér er margt hægt að gera, t.d. fara með hestvagni um bæinn, í gönguferð hringinn í kringum vatnið eftir þægilegri gönguleið og svo er hægt að fara upp á Rosshütte með kláfi sem fer upp í 1784 m hæð, en þar er gott veitingahús og upplagt að fá sér kaffi og tertusneið.
 
5. október              Innsbruck & Mittenwald
Innsbruck er höfuðstaður Tíróls, umvafinn fjöllum og fegurð. Mjög heillandi er miðaldahluti borgarinnar, en Innsbruck var ein af borgum Habsborgaranna, einnar mikilvægustu konungsættar Evrópu. Blómatími borgarinnar var á 15. öld undir stjórn Maximilians I af Habsborg, en hann lét byggja eitt aðalaðdráttarafl borgarinnar, húsið með Gullþakinu sem stendur við eitt fallegasta torgið í Tíról. Hér verður farið í stutta skoðunarferð um borgina, en eftir það verður hægt að kanna borgina á eigin vegum, líta inn til kaupmanna í Maria-Theresien-Straße eða setjast niður á kaffihús. Á bakaleiðinni verður komið við í bænum Mittenwald, sem á sér engan líkan, með sínum myndskreyttu litlu húsum, bæjarlæk og skemmtilegum verslunum. Bærinn er frægur fyrir smíði strengja- og plokkhljóðfæra og stendur minnisvarði af Matthias Klotz upphafsmanni fiðlusmíði í Mittenwald fyrir utan fiðlusafn bæjarins.
 
6. október              Heimferð
Eftir indæla og skemmtilega ferð verður ekið til München. Brottför þaðan kl. 14.05 og lending í Keflavík kl. 16.00. að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
 


 
 
 
Verð: 198.900 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 29.200 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallaskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Sigling í Feneyjum ca. € 15, sigling á Gardavatni ca. € 10, kláfur frá Malcesina upp á Monte Baldo ca. € 17, aðgangur að hringleikahúsinu í Verona ca. € 4, hádegisverður og vínsmökkun í Rovereto ca. € 16. 
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð