Haust 3 Suður-Frakkland & Spánn

 

21. september - 3. október 2012     ÖRFÁ SÆTI LAUS!
Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir

 
Í þessari skemmtilegu ferð kynnumst við töfrandi menningu Spánar og Frakklands og mannlífi þessara fallegu landa. Fegurðin er óviðjafnanleg og náttúran sem ferðast er um stórbrotin. Ferðin hefst á flugi til Frankfurt. Fyrst er haldið til Mulhouse þar sem gist verður fyrstu nóttina. Svo verður ekið til Annecy, sannkallaðrar perlu frönsku Alpanna, þar sem gist verður í 2 nætur. Þá komum við til Tossa de Mar, yndislegs bæjar við Costa Brava ströndina og gistum þar í 6 nætur. Þaðan verður farið í skoðunarferðir, m.a. til heimsborgarinnar Barcelona og í Montserrat klaustrið sem liggur í 720 m hæð í Katalónsku hæðunum, en þar hlustum við á einn frægasta drengjakór landsins. Einnig verður farið í siglingu frá Lloret de Mar til Tossa de Mar, komið til Figueres, fæðingarborg Salvador Dalí, skoðum safnið hans, Teatre-Museu, en safnið er eitt mikilvægasta aðdráttarafl ferðaþjónustunnar í Katalóníu. Síðustu 3 næturnar verða í Valencia sem er með stærstu borgum landsins og er mjög eftirsótt jafnt af Spánverjum sem og öðrum ferðamönnum, þaðan farið til Sagunto, gamallar borgar þar sem er rómverskt leikhús og forn kastali. Ferðinni lýkur á flugi frá Alicante.  

 

 

 
21. september               Flug til Frankfurt – Mulhouse
Brottför frá Keflavík kl. 7.25. Mæting í Leifsstöð 2 klst. fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma (+2 klst). Þaðan verður ekið til Mulhouse í Frakklandi og gist þar í eina nótt.
 
22. september               Mulhouse - Annecy í Frakklandi
Eftir morgunverð höldum við áfram til Frakklands, nánar tiltekið til Annecy, sannkallaðrar perlu Alpanna við Annecy-vatn sem er umvafið frönsku Ölpunum. Gistum í 2 nætur í þessum skemmtilega bæ.
 
23. september               Dagur í Annecy
Byrjum daginn á gönguferð um Annecy. Þessi fallega borg liggur inn á milli fjalla við Annecy-vatn og er hún ein þeirra elstu í frönsku Ölpunum. Yfir bænum gnæfir höll og mörg húsanna eru frá 16. - 18. öld. Eftir hádegi verður hægt að fara í siglingu á vatninu.
 
24. september               Tossa de Mar á Spáni
Nú heldur ferð okkar áfram til Tossa de Mar, sem er einn fallegasti strandbærinn við Costa Brava ströndina. Gist í Tossa de Mar í 6 nætur á góðu hóteli í miðbænum.
 
25. september               Dagsferð til Barcelona
Í dag verður farið til Barcelona sem er höfuðstaður Katalóníu-héraðsins. Borgin er mjög gömul og saga hennar merkileg, en þess má geta að konungarnir af Aragón voru upprunalega greifarnir af Barcelona. Fegurð borgarinnar er í takt við gestrisni íbúanna og mun innlendur leiðsögumaður sýna okkur áhugaverðustu staði borgarinnar. Má þá sérstaklega nefna kirkjuna La Sagrada Familia (heilögu fjölskylduna) eftir arkitektinn Gaudi og garðinn Güell. Einnig verður ekið upp á hæðina Montjuïc, en þaðan er fallegasta útsýnið yfir borgina.
 
26. september               Salvador Dalí
Nú verður ekið til Figueres, þangað sem um 600.000 ferðamenn koma árlega til að sækja heim fæðingarstað Salvador Dalí. Skoðum safnið hans, Teatre-Museu, en safnið er eitt mikilvægasta aðdráttarafl ferðaþjónustunnar í Katalóníu. 
 
27. september               Montserrat klaustrið
Í dag verður ekið að Montserrat klaustrinu, sem er í 720 m hæð í Katalónsku hæðunum en þar er ólýsanleg og stórbrotin fegurð. Klaustrið var stofnað á 9.öld, en á 11.öld varð það að Benediktiner-klaustri. Þar hlustum við á tónleika kl. 13.00 hjá hinum fræga drengjakór klaustursins „Escolania del monestir de Montserrat“. Í kórnum eru 50 drengir á aldrinum 9 – 14 ára sem syngja þar daglega.
 
28. september               Stutt skoðunarferð og frjáls tími
Nú verður farið í skoðunarferð um Tossa de Mar sem er í rauninni gamalt fiskimannaþorp. Gamli bærinn, Vila Velle, er dulúðlegur með turnveggjum sínum og rústum frá miðöldum. Í efri hluta bæjarins er miðaldaborgarmúr og rústir frá rómverskum búðum. Eftir skoðunarferðina er frjáls tími, hægt að taka lífinu með ró, rölta um ströndina og kanna umhverfið.
 
29. september               Sigling til Lloret de Mar
Í dag er sigling yfir til Lloret de Mar, sem er einn vinsælasti ferðamannabærinn við ströndina. Förum saman í stutta göngu um bæinn, síðan gefst frjáls tími til að fá sér hressingu og kanna líflegt líf bæjarbúa. Siglt til baka til Tossa de Mar.
 
30. september               Kveðjum Tossa de Mar - ekið til Valencia  
Nú verður ekin fögur leið með ströndinni til Valencia sem er með stærstu borgum landsins og mjög eftirsótt af Spánverjum sem og öðrum ferðamönnum og þar gistum við í 3 nætur á góðu hóteli.
 
1. október               Skoðunarferð í Valencia - Sagunto sótt heim
Byrjum daginn á að fara í stutta skoðunarferð um Valencia. Eftir skoðunarferðina verður ekið til Sagunto sem er einn sögufrægra staða frá tímum Rómverja. Þar er að finna fornminjar frá rómversku leikhúsi og kastala, en íbúarnir kalla þetta einfaldlega „Leikhúsið“ (el Teatro) og „Kastalann“ (el Castillo), en Karþagóbúar, Rómverjar, Márar og Frakkar, sem voru staðsettir í borginni 1811, skildu eftir sig minnismerki í byggingum og á virkisveggjum. Farið verður í skoðunarferð með heimamanni, síðar verður frjáls tími til að fá sér hressingu og skoða sig um í borginni.
 
2. október               Frjáls dagur í Valencia
Í dag verður frjáls dagur í Valencia, nú er hægt að skoða sig betur um í borginni og nota aðstöðuna við hótelið. Einnig er hægt að skoða söfn borgarinnar sem eru fjölmörg eða fara í göngutúr með fram ströndinni. Valencia býður upp á frábærar baðstrendur við hjarta borgarinnar, en þetta er líka ein af lista- og menningarborgum landsins. Föníkar lögðu hornstein að borginni og Márar komu einnig við sögu og má því víða sjá fallegar byggingar og fornminjar.
 
3. október               Heimferð frá Alicante
Eftir yndislega ferð verður ekið til Alicante. Brottför þaðan kl.15.00 og lending í Keflavík kl.17.30 að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
 
 


 
 
Verð: 224.400 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 44.900 kr. 
 
 
Innifalið:
• Flug með Icelandair og flugvallaskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Sigling á Annecy-vatni ca. € 12. Kirkjan La Sagrada Familia ca. € 11, Salvador Dalí safnið í Figueres ca. € 7, sigling til Lloret de Mar ca. € 7. 
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð