Haust 2 Tíról & Alparósir

 

20. – 27. september 2012      UPPSELT!
Fararstjóri: Guðbjörn Árnason

 
Nú höldum við á vit ævintýranna, til Tíróls í Austurríki þar sem fegurð fjallanna umlykur okkur. Eftir flug til München, fáum við okkur hressingu í miðbæ München áður en ekið verður til Walchsee í Tíról. Gistum í 7 nætur í bænum Walchsee við Walchsee vatnið á rómantískum stað við rætur Keisarafjallanna. Farið í skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. til tónlistarborgarinnar Salzburg, einnar af perlum landsins og á kúasmölunarhátíð. Þetta er mikil hátíð með bændamarkaði, Tírólatónlist, bjór, mat, dansi og söng. Förum til Kitzbühel þar sem upplagt er að taka kláf upp á Kitzbüheler Horn (1998 m) þaðan sem útsýnið er ægifagurt. Komið að Achensee-vatninu sem er eitt fallegasta vatn Tíróls og til Gramai-Alm þjóðgarðsins í Karwendelfjöllunum, en þar væri upplagt að snæða hádegisverð saman og skoða osta- og pylsusel frá 16. öld. Einnig komið til Kufstein, en þar er frægt turnorgel sem spilað er á fyrir bæjarbúa tvisvar á dag og hljómar um borg og bæ. Auðvitað verður frjáls tími til að taka því rólega við Walchsee og njóta aðstöðunnar við hótelið.  
 
 

 
 
  

 

 

 
20. september              Flug til München og ekið til Walchsee í Tíról
Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma ( + 2 klst. ). Byrjum á því að fara inn í München, fá okkur hressingu og líta á mannlíf borgarbúa. Þaðan verður ekið til Tíróls í Austurríki, að Walchsee við Walchsee vatnið, sem er á rómantískum stað við rætur Keisarafjallanna. Þar verður gist í 7 nætur á 4* hóteli með heilsulind.
 
21. september              Dagur í Salzburg
Eftir góðan morgunverð verður ekið til fæðingarborgar Mozarts, Salzburgar. Borgin er þekkt fyrir byggingar í barokkstíl og var hún skráð á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996, en Salzburg er í hugum margra sannkölluð perla Austurríkis. Við byrjum á að fara í stutta skoðunarferð um borgina, skoðum Mirabell garðinn og göngum eftir Getreidegasse sem er með elstu og þekktustu götum borgarinnar, en þar er mjög áhugavert Mozartsafn. Einnig verður hægt að fara upp í kastalann Hohensalzburg þar sem hluti kvikmyndarinnar Söngvaseiðs eða „Sound of Music“ var tekinn upp. Stórkostlegt útsýni er þaðan yfir Salzburgerland og borgina. Síðan gefst frjáls tími til að kanna iðandi mannlíf borgarinnar og fá sér hressingu.
 
22. september              Kúasmölunarhátíðin í Kössen
Í dag er komið að ferð til bæjarins Kössen í dalverpi milli Chiemgauer Alpanna og Keisarafjallanna. Það stendur mikið til hjá bæjarbúum í dag, því nú er komið að sjálfri kúasmöluninni. Bændur reka kýr sínar til byggða eftir dvöl í seljum í fjöllunum. Hefð er fyrir því að skreyta kýrnar og gjöfulasta kýrin er mest skreytt. Mikil hátíðahöld eru í bænum, markaður með afurðir frá bændum, tónlist að hætti Tíróla, matur, bjór, söngur og dans.
 
23. september              Frjáls dagur
Við tökum því rólega í dag. Það er því upplagt að nota aðstöðuna á hótelinu, fara í sund, gufu, heitan pott og einnig er hægt að láta dekra við sig því margt er í boði. Fegurðin er mikil þarna inn á milli fjallanna við Walchsee vatnið svo það er tilvalið að fara í gönguferð. Eins er bærinn Walchsee mjög snotur. 
 
24. september              Dagsferð til Kitzbühel
Kitzbühel er í dag einn af þekktari vetraríþróttabæjum landsins. Á 16. og 17. öld blómstraði bærinn vegna kopar- og silfurvinnslu. Gamli bærinn hefur að geyma gömul bindingsverkshús, Katharinen-kirkjuna sem er í gotneskum stíl og mikið úrval af fínum verslunum. Mikil upplifun er að taka kláf upp á Kitzbüheler Horn sem er í 1.998 m hæð yfir sjávarmáli. Þar er veitingahús, kapella og stórkostlegt útsýni.
 
25. september              Achensee og Gramai – Alm þjóðgarðurinn
Nú er komið að Achensee-vatninu sem er eitt fallegasta og jafnframt stærsta vatn Tíróls. Stoppað verður í Pertisau sem er lítill og skemmtilegur bær. Eftir það verður ekið til Gramai–Alm, þjóðgarðs Karwendel-fjalla sem er í 1263 m hæð, en þar er tilvalið að fá sér léttan hádegisverð og skoða osta- og pylsusel frá 16 öld.
 
26. september              Kufstein
Eftir morgunverð er ferðinni heitið til Kufstein, þar sem farið verður í stutta skoðunarferð og upp að kastalanum, en þaðan er útsýnið yfir bæinn og nærliggjandi sveitir undurfagurt. Þar er einnig hægt að heyra í orgelinu sem er í turni kastalans, en bærinn er einmitt þekktur fyrir þetta fallega orgel.
 
27. september              Heimferð
Eftir indæla og skemmtilega ferð verður ekið til München. Brottför þaðan kl. 14.05 og lending í Keflavík kl. 16.00 að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn. 
 


 
 
 
Verð: 169.600 kr. á mann í tvíbýli.                       Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 12.200 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallaskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hóteli
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Aðgangur að kúasmölunarhátíðinni í Fügenberg
• Aðgangur inn í Gramai – Alm þjóðgarðinn
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Kláfur upp á Kitzbüheler Horn ca. € 15. Aðgangur í kastalann í Kufstein með orgeltónleikum ca. € 10. 
 
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð