Haust 2 Kúasmölun í Austurríki

 

22. – 29. september 2010    UPPSELT!
Farastjóri: Guðbjörn Árnason

Nú höldum við á vit ævintýranna, til Austurríkis þar sem
fegurð fjallanna umlykur okkur og tökum þátt í hátíðahöldunum þegar kýrnar eru reknar niður dalina til byggða eftir sumardvöl í seli. Fljúgum til Frankfurt og ökum til Ingolstadt, þar sem gist verður fyrstu nóttina. Þaðan verður ekið til Mayrhofen, eins aðal ferðamannabæjar í Zillertal sem oft er sagður einn fallegasti dalur Tíróls og gjarnan nefndur „dalur söngsins“. Gist í Mayrhofen í 4 nætur. Á leiðinni þangað verður komið til Kufstein, en þar er frægt turnorgel sem spilað er á fyrir bæjarbúa tvisvar á dag og hljómar um borg og bæ. Frá Mayrhofen förum við í ævintýralegar skoðunarferðir, t.d. með kláfi upp á Hintertux-jökulinn, yfir Gerlos-skarð, að Krimmler-fossunum, til Kitzbühl og á Kitzbühler Horn. Hápunktur ferðarinnar verður kúasmölunin í Reith í Alpbachdal, en hefð er fyrir því að skreyta kýrnar og gjöfulasta kýrin fær stærstu skreytinguna. Þetta er mikil hátíð með bændamarkaði, Tírólar- og Zillerdals-tónlist, bjór, mat, dansi og söng og margir íbúanna eru klæddir í þjóðbúning svæðisins. Eftir góða daga í Mayrhofen verður ekið til Würzburg þar sem við gistum 2 síðustu næturnar áður en við höldum heim frá Frankfurt.

 

 

 
 
22. september Flug til Frankfurt og ekið til Ingolstadt
Brottför frá Keflavík kl. 7.25. Mæting í Leifsstöð 2 klst. fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma (+2 klst). Þaðan verður ekið til Ingolstadt og gist þar fyrstu nóttina.

23. september Ingolstadt – Kufstein – Mayrhofen
Eftir morgunverð er ferðinni haldið áfram til Kufstein í Austurríki þar sem farið er í stutta skoðunarferð og upp að kastalanum, en þaðan er útsýnið yfir bæinn og nærliggjandi sveitir ægifagurt. Þar er einnig hægt að heyra í orgelinu sem er í turni kastalans, en bærinn er einmitt þekktur fyrir þetta fallega orgel. Eftir það verður ekið til Wattens að Swarovski kristalsverksmiðjunni og safninu og það skoðað áður en ekið verður til Mayrhofen þar sem gist verður í fjórar nætur.

24. september Mayrhofen – Hintertuxalparnir
Byrjum daginn rólega og skoðum okkur um í Mayrhofen, sem er yndislegur bær með fallegum húsum og ekki skemmir landslagið sem umvefur Zillerdalinn. Eftir hádegi verður farið með rútunni að Hintertux kláfnum, þaðan sem farið verður upp á Hintertux jökulinn upp í 3000 m hæð en þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Alpana frá palli sem er í 3.200 m hæð.

25. september Kúasmölun í Reith im Alpbachtal
Í dag er komið að hápunkti ferðarinnar, sjálfri kúasmöluninni. Ekin verður falleg leið inn í Alpbachdalinn til bæjarins Reith, en þar reka bændur kýr sínar til byggða eftir dvöl í seljum í fjöllunum. Hefð er fyrir því að skreyta kýrnar og gjöfulasta kýrin er með mestu skreytinguna. Mikil hátíðahöld eru í bænum, markaður með afurðir frá bændum, Tírólar og Zillerdals tónlist, matur, bjór, söngur og dans.

26. september  Gerlosskarð –  Krimmler fossar – Kitzbühl
Eftir morgunverð verður ekið yfir Gerlos skarðið inn í Pinzgau að Krimmler fossunum. Þar förum við í smá gönguferð, ca. 15 mín, að fossunum. Eftir það verður ekið inn í Salzachtal til Kitzbühl, sem í dag er einn af þekktari vetraríþróttabæjum landsins. Á 16. og 17. öld blómstraði bærinn vegna kopar- og silfurvinnslu. Gamli bærinn hefur að geyma gömul bindiverkshús, Katharinen-kirkjuna sem er í gotneskum stíl og mikið úrval af fínum verslunum. Mikil upplifun er að taka kláf upp á Kitzbühler Horn sem er í 1.998 m hæð yfir sjávarmáli. Þar er veitingahús, kapella og stórkostlegt útsýni. Ekið tilbaka í gegnum Brixental og Hofgarten í Inntal til Mayrhofen.

27. september Mayrhofen - Würzburg
Nú er komið að því að kveðja þennan fallega dal. Leggjum snemma af stað, ökum til Würzburg sem er í Franken vínhéraðinu og gistum þar í 2 nætur.

28. september Dagur í Würzburg
Würzburg á sér langa sögu og þar er margt að skoða. Þetta er mjög falleg og lífleg borg, sem varð fyrir miklum skemmdum í seinni heimsstyrjöldinni, en hefur verið byggð upp í sinni upprunalegu mynd. Það eru 85 kirkjur í borginni en aðeins um 130.000 íbúar. Farið verður í stutta skoðunarferð og síðan gefst frjáls tími til að kanna borgina og mannlífið á eigin vegum.

29. september Heimferð
Eftir indæla og skemmtilega ferð verður ekið til Frankfurt. Brottför þaðan kl. 14.00. Lendum í Keflavík kl. 15.35 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært milli daga eftir því sem þörf þykir þegar komið er á staðinn.

Sjá allar upplýsingar um verð og innifalið á næsta flipa hér fyrir ofan.
 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð