Haust 1 Vínarvalsar Dónár

 

13. – 20. september 2012          4 SÆTI LAUS!
Farastjóri: Íris Sveinsdóttir

 
Austurríki er með fegurstu löndum Evrópu. Þessi glæsilega ferð hefst á flugi til München og síðan er ekið til Passau, sem er við ármót Dónár, Inn og Ilz í Bæjaralandi. Gist í Passau í eina nótt. Síðan hefst sigling á fegursta fljóti Evrópu, Dóná, en siglt verður frá Passau til Linz. Á leið okkar eru kastalar og lítil þorp sem veita okkur innsýn í sögu og menningu fólksins við ána í gegnum aldirnar. Förum í skoðunarferð um Linz, en borgina prýða tignarlegar byggingar í barokk- og endurreisnarstíl. Gist þar eina nótt á hóteli í miðborginni. Siglt áfram til Vínarborgar, höfuðborgar Austurríkis og gist þar í 4 nætur, en hún er með glæsilegri borgum Evrópu, stórfagrar byggingar skreyta alla borgina og ekki má gleyma glæsilegustu höll landsins, Schönbrunn höllin, sem verður skoðuð ásamt helstu stöðum borgarinnar m.a litið inn í Stephans-dómkirkjuna og farið að hinu þekkta Hundertwasser-húsi. Kveðjum Vínarborg eftir dásamlega daga og ökum til Þýskalands þar sem gist verður síðustu nóttina.  

 

 

 

 
13. september               Flug til München og ekið til Passau
Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma. Þaðan verður ekið til Passau, sem er við ármót Dónár, Inn og Ilz í Bæjaralandi. Árnar þrjár setja svo fallegan svip á borgina að margir telja þetta með fallegustu bæjarstæðum Evrópu. Hér verður gist í eina nótt á hóteli í miðbænum.
 
14. september               Sigling frá Passau til Linz
Nú verður farið í siglingu á fegursta fljóti Evrópu, Dóná. Siglt verður frá Passau til Linz og er landslagið á leiðinni fjölbreytt. Eftir komuna til Linz um kl. 14.00 verður farið í skoðunarferð um þennan höfuðstað Oberösterreich héraðsins. Fegurð borgarinnar sem byggðist upp beggja megin Dónar er mikil og setur Niflungabrúin svip sinn á Linz. Gist í Linz í eina nótt.
 
15. september               Sigling frá Linz til Vínarborgar
Nú kveðjum við Linz og siglum áfram eftir Dóná til Vínarborgar, höfuðborgar Austurríkis. Fegurðin leikur um okkur í dag, á leið okkar eru kastalar og lítil þorp sem veita okkur innsýn í sögu og menningu fólksins við ána í gegnum aldirnar. Við snæðum kvöldverð um borð í fljótaskipinu og komum til hinnar fallegu Vínar um kl. 20.30. Vín, sem er talin með glæsilegri borgum Evrópu, stendur á bökkum Dónár og nær yfir 415 ferkílómetra svæði. Höldum frá skipi rakleiðis á hótelið okkar í en þar ætlum við að dvelja næstu 4 nætur.
 
16. september               Skoðunarferð um Vínarborg
Vín er mikil lista- og menningarborg með um 1,7 milljónir íbúa. Í dag verður farið í skoðunarferð með innlendum leiðsögumanni um þessa glæsilegu höfuðborg Austurríkis og skoðum við helstu byggingar, hallir og garða. Lítum inn í Stephans-dómkirkjuna og förum að hinu þekkta Hundertwasser-húsi. Einnig gefst frjáls tími til að að kanna líf borgarbúa það sem eftir er dagsins.
 
17. september               Frjáls dagur í Vínarborg
Í dag verður frjáls dagur til að skoða sig um í borginni og er t.d. hægt að fara í ferð með hestakerru um borgina (farastjórinn mælir með því), fara á söfn, skoðunarferð um óperuhúsið og fá sér kaffi og Sachertertu. 
 
18. september               Skoðunarferð um Schönbrunn höllina
Eftir morgunverð verður farið að Schönbrunn höllinni, sem var byggð á árunum 1692 – 1780 sem sumarhöll Maríu Theresíu keisaraynju og fjölskyldu. Höllin sem er með fallegustu síðbarokkhöllum Evrópu, var einnig notuð af öðrum Habsborgurum. Hægt verður að fara inn í höllina eða skoða listigarðinn við höllina með sínum fallegu gosbrunnum í barokkstíl, Gloriette heiðursminnisvarða herliðs keisarans, kaffihús og minjagripaverslanir. Eftir það gefst frjáls tími inni í borginni. 
 
19. september               Kveðjum Vín og ökum til Þýskalands
Nú er dvöl okkar í Vínarborg á enda. Við ökum fallega leið inn í Þýskaland og gistum þar síðustu nóttina.
 
20. september               Heimferð
Eftir góðan morgunverð verður ekið til München, en þaðan verður flogið heim. Brottför kl. 14.05 og lending í Keflavík kl. 16.00 að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
 


 
 
 
Verð: 189.600 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 35.800 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgunverður allan tímann á hótelum
• 6 kvöldverðir á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Sigling á Dóná frá Passau til Linz
• Sigling á Dóná frá Linz til Vínarborgar
• Kvöldverður um borð í fljótaskipinu kvöldið sem komið er til Vínarborgar
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Skoðunarferð um Schönbrunn höllin ca. € 15,50. Ferð með hestakerru um borgina ca. € 40. 
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.


 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð