Haust

 
 

Haust 1 - Vínarvalsar Dónár


13. - 20. september 2012
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir
 

Austurríki er með fegurstu löndum Evrópu. Þessi glæsilega ferð hefst á flugi til München og síðan er ekið til Passau, sem er við ármót Dónár, Inn og Ilz í Bæjaralandi. Gist í Passau í eina nótt. Síðan hefst sigling á fegursta fljóti Evrópu, Dóná, en siglt verður frá Passau til Linz. Á leið okkar eru kastalar og lítil þorp sem veita okkur innsýn í sögu og menningu fólksins við ána í gegnum aldirnar. Förum í skoðunarferð um Linz, en borgina prýða tignarlegar byggingar í barokk- og endurreisnarstíl. Gist þar eina nótt á hóteli í miðborginni. Siglt áfram til Vínarborgar, höfuðborgar Austurríkis og gist þar í 4 nætur, en hún er með glæsilegri borgum Evrópu, stórfagrar byggingar skreyta alla borgina og ekki má gleyma glæsilegustu höll landsins, Schönbrunn höllin, sem verður skoðuð ásamt helstu stöðum borgarinnar m.a litið inn í Stephans-dómkirkjuna og farið að hinu þekkta Hundertwasser-húsi. Kveðjum Vínarborg eftir dásamlega daga og ökum til Þýskalands þar sem gist verður síðustu nóttina.
 



Haust 2 - Tíról & Alparósir


20. - 27. september 2012
Fararstjóri: Guðbjörn Árnason
 

Nú höldum við á vit ævintýranna, til Tíróls í Austurríki þar sem fegurð fjallanna umlykur okkur. Eftir flug til München, fáum við okkur hressingu í miðbæ München áður en ekið verður til Walchsee í Tíról. Gistum í 7 nætur í bænum Walchsee við Walchsee vatnið á rómantískum stað við rætur Keisarafjallanna. Farið í skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. til tónlistarborgarinnar Salzburg, einnar af perlum landsins og á kúasmölunarhátíð. Þetta er mikil hátíð með bændamarkaði, Tírólatónlist, bjór, mat, dansi og söng. Förum til Kitzbühel þar sem upplagt er að taka kláf upp á Kitzbüheler Horn (1998 m) þaðan sem útsýnið er ægifagurt. Komið að Achensee-vatninu sem er eitt fallegasta vatn Tíróls og til Gramai-Alm þjóðgarðsins í Karwendelfjöllunum, en þar væri upplagt að snæða hádegisverð saman og skoða osta- og pylsusel frá 16. öld. Einnig komið til Kufstein, en þar er frægt turnorgel sem spilað er á fyrir bæjarbúa tvisvar á dag og hljómar um borg og bæ. Auðvitað verður frjáls tími til að taka því rólega við Walchsee og njóta aðstöðunnar við hótelið.
 


 

Haust 3 - Suður-Frakkland & Spánn


21. september – 3. október 2012
Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir
 

Í þessari skemmtilegu ferð kynnumst við töfrandi menningu Spánar og Frakklands og mannlífi þessara fallegu landa. Fegurðin er óviðjafnanleg og náttúran sem ferðast er um stórbrotin. Ferðin hefst á flugi til Frankfurt. Fyrst er haldið til Mulhouse þar sem gist verður fyrstu nóttina. Svo verður ekið til Annecy, sannkallaðrar perlu frönsku Alpanna, þar sem gist verður í 2 nætur. Þá komum við til Tossa de Mar, yndislegs bæjar við Costa Brava ströndina og gistum þar í 6 nætur. Þaðan verður farið í skoðunarferðir, m.a. til heimsborgarinnar Barcelona og í Montserrat klaustrið sem liggur í 720 m hæð í Katalónsku hæðunum, en þar hlustum við á einn frægasta drengjakór landsins. Einnig verður farið í siglingu frá Lloret de Mar til Tossa de Mar, komið til Figueres, fæðingarborg Salvador Dalí, skoðum safnið hans, Teatre-Museu, en safnið er eitt mikilvægasta aðdráttarafl ferðaþjónustunnar í Katalóníu. Síðustu 3 næturnar verða í Valencia sem er með stærstu borgum landsins og er mjög eftirsótt jafnt af Spánverjum sem og öðrum ferðamönnum, þaðan farið til Sagunto, gamallar borgar þar sem er rómverskt leikhús og forn kastali. Ferðinni lýkur á flugi frá Alicante.
 


 

Haust 4 - Gardavatn & Feneyjar


25. september – 6. október 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
 

Gardavatn hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga til margra ára, enda líkti Goethe staðnum við himnaríki og skyldi engan undra. Eftir flug til München byrjum við á því að fá okkur hressingu í miðbæ München, en þaðan verður ekið til Kufstein í Tíról sem er mjög líflegur og skemmtilegur bær þar sem gist verður í 2 nætur. Þaðan verður ekið til Riva del Garda sem er einn vinsælasti ferðamannabærinn við Gardavatn og gist þar í 6 nætur. Farið í áhugaverðar skoðunarferðir, m.a í siglingu á Gardavatni til Limone og Malcesine sem eru perlur Garda, til Feneyja, drottningu Adríahafsins, Veróna elstu borg Norður-Ítalíu og Trento. Eftir ljúfa daga verður haldið til Seefeld í Tíról, Austurríki, þar sem ríkir mikil náttúrufegurð inn á milli fjallanna þar sem gist verður síðustu 3 næturnar. Þaðan verður farið til Innsbruck, höfuðstaðs Tíróls, með heillandi miðaldarmiðbæ, komið við í bænum Mittenwald, sem á sér engan líkan, með sínum litlu myndskreyttu húsum, bæjarlæk og verslunum. Ýmsar skemmtilegar uppákomur, farið verður á útimarkað, hádegisverður snæddur í kastala hjá vínbónda og margt fleira.
 

 
 

Haust 5 - Vínbændur & kastalar


28. september – 5. október 2012
Fararstjórar: Georg Kári Hilmarsson & Agnar Guðnason
 

Móseldalurinn er ægifagur, haustlitirnir skarta sínu fegursta og vínuppskerutíminn er hafinn. Flogið verður til Frankfurt og gist í 5 nætur hjá vínbændum í Leiwen við ána Mósel. Þaðan verður farið í áhugaverðar skoðunarferðir, t.d. til Bernkastel og Cochem, sem þykir einn fallegasti bær við ána. Þá verður komið til Idar-Oberstein sem frægur er fyrir skartgripagerð, mjög skemmtilegt eðalsteinasafn og ekki má gleyma hellakirkjunni frægu sem er byggð inni í kletti. Einnig verður komið til elstu borgar Þýskalands, Trier, sem hefur að geyma miklar fornminjar frá tímum Rómverja. Margt skemmtilegt verður á döfinni þessa daga, t.d. ratleikur þar sem leitað verður að gómsætum Móselvínum. Komið verður til Rüdesheim, eins vinsælasta ferðamannabæjar við ána Rín, á leið okkar til Wiesbaden, þar sem gist verður á vel staðsettu miðbæjarhóteli síðustu 2 næturnar. Flogið heim frá Frankfurt.
 

 
 

Haust 6 - Bled vatn & Rósahöfnin


29. september – 9. október 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Þóra Valsteinsdóttir
 

Í þessari ljúfu ferð er Portorož í Slóveníu, eða Rósahöfnin svokallaða, okkar aðaláfangastaður. Ferðin hefst á flugi til München. Þaðan verður ekið rakleiðis að Bled vatni í Slóveníu og gist í 2 nætur. Náttúran um Bled vatn er hrífandi fögur og lætur engan ósnortinn. Við siglum út í eyjuna Blejski otok þar sem er þekkt Maríukirkja . Ferðin heldur síðan áfram til Portorož þar sem gist verður í 5 nætur en á leiðinni verða hinir víðfrægu Postojna dropasteinshellar skoðaðir. Margar áhugaverðar skoðunarferðir verða farnar frá Portorož, m.a. í siglingu til Isola og Piran, bæjar sem er einn af perlum Slóveníu, og bærinn Rovinj í Króatíu heimsóttur, stoppað við Limski skurðinn og vínbóndi heimsóttur. Einnig komið til Hrastovlje, sem er þekkt fyrir heilögu þrenningarkirkjuna sem skartar mjög merkilegum freskum, þ.á.m. þeirri frægu er kallast „Dauðadans“. Einnig komum við til hafnarborgarinnar Koper í Slóveníu. Eftir góða daga í Portorož sækjum við tónlistarborgina Salzburg í Austurríki heim, en hún er ein af fallegustu borgum landsins. Þar gistum við síðustu 3 næturnar, skoðum borgina, förum í Arnarhreiðrið og að Königsee vatninu sem er eitt fallegasta vatn Þýskalands.
 

 
 

Haust 7 - Haustlitir í Svartaskógi


7. – 14. október 2012
Fararstjóri: Þórhallur Vilhálmsson
 

Vínakrar, kastalar og skógar er nokkuð sem við kynnumst í þessari skemmtilegu ferð til Þýskalands, Frakklands og Sviss. Flogið verður til Frankfurt og síðan ekið inn í Svartaskóg til Oberkirch, þar sem við gistum í 7 nætur. Förum í spennandi og áhugaverðar skoðunarferðir, t.d. sækjum við Freiburg heim, en hún hefur að geyma eitt af meistaraverkum gotneska tímans. Síðan verður ekið um Klukkuveginn í Svartaskógi og komið við á verkstæði þar sem gauksklukkur eru búnar til, komum til Nancy í Frakklandi, eina af barokkborgum landsins, Strasbourg, höfuðborgar Alsace héraðsins þar sem hægt er að fara í siglingu á ánni Ill eða ganga um Litla Frakkland, eitt elsta hverfi borgarinnar. Einnig verður ekið inn til Sviss, nánar tiltekið til Basel sem er mjög lífleg og skemmtileg borg, og oft sögð með fegurstu borgum Evrópu. Ekið um „Vínslóðina“ í Alsace þar sem við þræðum ótal falleg smáþorp og byrjum á því að stoppa í Obernai sem er lítill og skemmtilegur bær, ekið um Barr, frá Ribeauvillé til Riquewihr sem er ein af perlum héraðsins, en þar væri upplagt að enda á vínsmökkun. Eftir skemmtilega ferð verður flogið heim frá Frankfurt.
 



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð