Þórhallur Vilhjálmsson

 

Þórhallur Vilhjálmsson er fæddur í Reykjavík 1963. Hann nam markaðsfræði við háskólann í San Francisco og útskrifaðist þaðan árið 1990. Hann hefur starfað að markaðsmálum hjá ýmsum fyrirtækjum bæði hérlendis og í Bandaríkjunum m.a. sem forstöðumaður sölu- og framleiðsluáætlana hjá ISAL í Straumsvík, markaðsstjóri hjá Nýsi hf og markaðsstjóri Portus hf (sem byggir tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpuna í Reykjavík).

Árin 1990-1992 starfaði hann sem einkaþjónn bandaríska rithöfundarins Danielle Steel og gaf út endurminningabók sína Svínahirðirinn um þá lífsreynslu áratug síðar.

Þórhallur starfaði um árabil sem leiðsögumaður í gönguferðum um hálendi Austurlands fyrir bresku ferðaskrifstofuna High Places en er nú fararstjóri hjá Bændaferðum.  Þess má geta að Þórhallur er eineggja tvíburabróðir Arinbjarnar Vilhjálmssonar arkitekts sem hefur verið fararstjóri í hinum ýmsu ferðum fyrir Bændaferðir síðan 1997.


 

Árið 2012 fer Þórhallur í ferðirnar


 

 
Umsagnir farþega um Þórhall:

„Þórhallur er einstaklega þægilegur maður sem vill allt fyrir alla gera. Hjálplegur, skemmtilegur og 100% í alla staði. Vona að ég eigi eftir að fara með honum aftur.“

„Ljúfur, yndislegur, hjálpsamur og skemmtilegur maður. Alltaf til staðar til að aðstoða okkur.“

„Hann heldur hópnum vel saman, er opinn, hress og skemmtilegur.“

„Mjög þægilegur maður og hélt vel utan um hópinn sinn.“

„Sérdeilis lipur, óþreytandi og skemmtilegur í viðmóti.“

„Hann er líflegur, hjálplegur og skapgóður.“



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð