Pavel Manasek hóf píanónám sex ára gamall. Hann lagði stund á orgelleik í Konservatoríinu í Kromeris og síðan í Prag-akademíunni. Pavel starfaði sem organisti og söngstjóri við Háteigskirkju 1993-1999 og á árunum 1991-1993 sem organisti og skólastjóri Tónlistarskólans á Djúpavogi. Jafnframt var hann undirleikari og hjá leiklistardeild Listaháskóla Íslands.
Árin 1999-2001 stundaði Pavel nám í hljómsveitarstjórn hjá Otakar Trhlík, prófessor við Janácek-tónlistarháskólann í Brno. Auk þess tók hann þátt í International workshop for conductors í Zlin hjá Kirk Trevor prófessor. Enn fremur sótti hann námskeið í orgelleik hjá Martin Hasselbock í Lübeck í Þýskalandi.
Pavel vann 2. verðlaun í keppni ungra organista í Opava í Tékklandi árið 1984 og sigraði í sömu keppni árið 1986. Síðan vann hann til þriðju verðlauna í Þjóðarkeppni organista í Brno. Hann hefur líka tekið þátt í alþjóðlegu tónlistarkeppninni Prague spring í Prag, í Budapest í Ungverjalandi og í Korschenbroich í Þýskalandi. Nýlega var Pavel ráðinn skólastjóri Konservation í Brno.
Pavel Manasek hefur töluverða reynslu af fararstjórn, en hann hefur ferðast með kóra um Tékkland og verið fararstjóri í ferðum í Prag, Búdapest, Kraká og Fuerte Ventura. Við erum því stolt af því að fá Pavel í lið með okkur!
Þann 11. nóvember 2009 birtist áhugaverð grein um Pavel í Fréttablaðinu.
Smelltu hér til að skoða greinina.
Árið 2012 fer Pavel í ferðina Sumar 10 - Kastalar & klingjandi kristall 4. - 16. ágúst.
Umsagnir farþega um Pavel:
„Fararstjóri hugsar vel um hópinn sinn.“
„Pavel er mjög skemmtilegur, góður, áhugasamur og fróður.“
„Hann er bara einn sá allra besti fararstjóri sem ég hef farið með. Óþreytandi að fræða og svara spurningum, segja sögur og aðstoða.“
„Hann hugsar mjög vel um hópinn. Hann er skemmtilegur og fróður, talar og skilur íslensku vel.“
„Mæli með Pavel vegna þess að hann kann að skipuleggja, fræða og ráða fram úr öllu sem þurfti að gera.“