Jens Ruminy

 
 
Jens Ruminy er fæddur 1968 í München í Þýskalandi. Eftir stúdentspróf nam hann í fyrstu efnafræði í München en söðlaði svo um og fór í stjórnmálafræði sem hann lauk meistaragráðu í.
 
Kynni hans af Íslandi hófust 1994 í München þegar hann kynntist eiginkonu sinni sem er íslenskukennari við Menntaskólann í Kópavogi. Þá vaknaði strax áhugi hans á íslensku og nam hann hana við háskólann í München. Auk þess að tala móðurmálið, þýsku, talar hann reiprennandi íslensku og mjög góða ensku og frönsku. Frá árinu 2000 hefur fjölskyldan búið í Reykjavík. Fyrstu tvö árin vann Jens á ferðaskrifstofu og kenndi síðan um tíma þýðingar á sviði ferðamála við Háskóla Íslands.
 
Ferðamennskan á hins vegar hug hans allan og vinnur Jens nú allt árið um kring sem leiðsögumaður erlendra ferðamanna á Íslandi. Hann hefur mjög breitt áhugasvið og er tilvalinn til að leiða ferðamenn um framandi slóðir.
 
Á sínum yngri árum ferðaðist Jens vítt og breitt um Evrópu og er því vel kunnur á þeim slóðum. Hann er bæði fróður um lönd og þjóðir, stjórnmál, atvinnu og menningu þeirra enda þurfa leiðsögumenn og fararstjórar að búa yfir breiðri þekkingu. 
 

 
Árið 2012 fer Jens í ferðina: Vor 3 - Trítlað og siglt 5. - 12. maí
 

 



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð