Inga Ragnarsdóttir er fædd 1955 í Reykjavík. Hún nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk þaðan prófi 1977. Eftir það dvaldi hún um tíma í Noregi en hélt síðan til Þýskalands þar sem hún hóf nám við Akademíuna í München. Þaðan lauk hún burtfararprófi 1987 með Diplóma. Síðan hefur hún unnið að myndlistinni bæði í Þýskalandi og hér á Íslandi. Hún á verk á söfnum eins og Listasafni Íslands og Bæríska Ríkislistasafninu en einnig útiverk á hinum ýmsu opinberu stöðum bæði á Íslandi og í Þýskalandi. Hún hefur kennt m.a.við Listaháskóla Íslands og við Menntaskólan í Füssen í Þýskalandi.
Inga Ragnarsdóttir er myndlistarmaður og vinnur fyrst og fremst þrívíddarverk. Hún hefur haldið fjölda sýninga bæði á Íslandi og erlendis. Fyrir utan myndlistina hafa ferðalög ætíð verið hennar aðal áhugamál auk þess sem hún hefur alltaf haft mikinn áhuga á þjóðfélagsmálum og hefur tekið þátt í sjálfboðastarfi á því sviði.
Hún hefur starfað fyrir Ferðaþjónustu bænda/Bændaferðir frá 2004. Síðan þá er hún búin að fara í fjölda ferða til Kína og segir að töfrar Kína vaxi eftir því sem maður kynnist landinu nánar. Kína hefur óþrjótandi möguleika upp á að bjóða hvað varðar menningu, heimsspeki og sögu, svo ekki sé talað um það sem er að gerast þar í dag í þjóðlífi og efnahag. Hún býr yfir mikilli þekkingu um land og þjóð enda hefur Kína heillað hana frá því á unglingsárunum.

Inga hefur farið margar ferðir um mið Evrópu, þá sérstaklega um Þýskaland þar sem hún er nú búsett. Hún hefur farið með hóp á vegum Bændaferða til Egyptalands og einnig hlaupahóp til Indlands sem tók þátt í Tíbetmaraþoninu árið 2008. Inga hefur starfað sem leiðsögumaður á Íslandi frá 2000, en hún lauk Leiðsögumannaskóla Íslands árið 2006. Samanburður á okkar menningu og menningu annara þjóða er eitt af hennar kærustu hugðarefnum og má segja að það speglist í því sem hún er að fást við í dag bæði í listinni og starfi hennar sem fararstjóra.
Þess má geta að Inga ferðaðist um Asíu og m.a. Tíbet fyrir um 30 árum síðan á eigin vegum og í þeirri ferð varð hún þess heiðurs aðnjótandi að hitta Dalai Lama.
„Sem myndlistarmaður er maður mikið einn á sinni vinnustofu en í fararstjórahlutverkinu hefur maður einstakt tækifæri að ferðast og upplifa og læra alltaf eitthvað nýtt um menningu og líf annara þjóða, með skemmtilegu og áhugasömu fólki.“
Árið 2012 fer Inga í ferðirnar
Umsagnir farþega um Ingu:
„Hún leggur sig 100% fram í starfi. Hún er úrræðagóð og kemur jafn fram við alla – brosið hennar heillaði mig algjörlega."
„Inga er mjög áreiðanleg, hefur hlýju og glaðlega nærveru og hún leysir vandamál ef upp koma á hógværan og yfirvegaðan máta. Yndisleg manneskja.“
„Inga er einstaklega jákvæð og hefur góða nærveru. Vel að lesin og skemmtileg.“
„Inga er með einstaklega þægilegt viðmót, róleg, brosmild og blandaði geði við alla í hópnum.“
„Góður fararstjóri, vel undirbúin og með hlýtt viðmót."
„Inga á hrós skilið hvað hún kynnir sér vel sögu staðanna."
„Inga er frábær fararstjóri, einstaklega þægileg í viðmóti og hjálpleg við samferðarfólkið.“
„Mjög þægileg og notaleg. Hef ferðast með henni áður og mun gera aftur, ekki spurning.“
„Frábær fararstjóri. Örugg leiðsögn, góð frásögn og leysti úr hverri þraut.“
Léttstíg Inga ljúf í sinni,
leiðir oss um borg og torg.
Viðrar sagnir vekur minni,
víkur lemtri þjóðarsorg.
Svo ljóst megum Ingu lofa
hún leiddi okkur um þetta allt
með fróðleik, um fjöll og kofa
og fólkið, sem vann hérna salt.