Hólmfríður Bjarnadóttir (Hófý) heiti ég og er fædd árið 1960 á Patreksfirði. Ég er móðir þriggja drengja og er búsett í Bæjaraskógi í Þýskalandi um þessar mundir með yngsta drenginn, Gabríel Daða. Eiginmaður minn er Norbert Birnböck sem er einn af bílstjórum Bændaferða.
Upphaflega kom ég inn í heim ferðamálanna í fylgd Agnars Guðnasonar, en hann hóf rekstur „Bændaferða“ fyrir 40 árum. Ég öðlaðist mikla og dýrmæta reynslu í samstarfi við Agnar á öllum þessum árum. Það fer að nálgast annan tuginn ára sem ég hef unnið við fararstjórn og ferðamál með Bændaferðum. Svo kom að því að Bændaferðir fóru að vera með ferðir til Mið-Evrópu og tók ég að mér fararstjórn í þeim ferðum ásamt því að taka þátt í skipulagningu á ferðunum. Á þessum fyrstu árum voru þátttakendur nær eingöngu fólk úr sveitum landsins og voru margir að fara sínar fyrstu ferðir til útlanda sem var mjög ánægjulegt að fá að upplifa og taka þátt í.
Í starfinu hef ég kynnst fjölmörgu, mjög skemmtilegu og fróðleiksfúsu fólki og eignast marga góða vini sem ég mun ekki gleyma. Þetta á bæði við um gestina og þann stóra hóp erlendra samstarfsmanna sem standa að baki ferðanna. Ég hef notið þess í ríkum mæli að fá að kynnast mörgum þjóðum, fögrum löndum og lenda í alls kyns skemmtilegum ævintýrum með gestum mínum.
"Ég býð ykkur hjartanlega velkomin á vit ævintýra og gleðistunda í Bændaferðum"
Hófý
Hægt er að hafa samband beint við Hófý hvort sem er með því að senda tölvupóst eða hringja. Uppgefinn sími er vinnusíminn hennar heima í Þýskalandi, sem þýðir að ekki er hægt að ná í hana í þetta númer ef hún er í ferð.
Hófý verður skrifstofu Ferðaþjónustu bænda - Bændaferða vikuna 6. - 10. febrúar 2012, þar sem hægt verður að ná tali af henni og fá frekari upplýsingar um þær ferðir sem hún er fararstjóri í.
Netfangið hennar er:
hofy@baendaferdir.isSími: 0049 992 19 60 44 10
Árið 2012 fer Hófý í eftirtaldar ferðir:
Umsagnir farþega um Hófý:
„Hófý hugsar vel um allt og alla og góður andi fylgir henni.“
„Hún er mjög hjálpsöm, jákvæð, skemmtileg og gefur mjög góðar upplýsingar og fróðleik um þá staði sem farið er á.“
„Frábær fararstjóri og félagi fólksins.“
„Glaðlegur góður félagi sem leysir úr öllum vanda.“
„Hófý er yndisleg, hún vill allt fyrir alla gera og sinnir starfi sínu af innlifun.“
„Hún er ein af hópnum, fræðandi, skemmtileg og með yndislegan smitandi hlátur.“
„Hófý hefur alla þá kosti sem góður fararstjóri þarf að bera, er stundvís, örugg, fróð og glaðlynd.“
„Hún er vel undirbúin undir leiðsögn sína.“
„Það er bara til ein Hófý.“
Vísa frá farþega:
Hófý mín nú þakka ber
þessi góðu kynni
við biðjum Guð að gefa þér
gæfu í framtíðinni
Norbert hefur nó að gera
að ná í bjór í mannskapinn
allar töskur út að bera
og að koma hópnum inn