Hlín Gunnarsdóttir

 
Hlín Gunnarsdóttir
Hlín Gunnarsdóttir
fæddist árið 1956 í Reykjavík en á ættir að rekja bæði vestur á firði og í Mýrdalinn. Hún lærði leikmynda og búningahönnun i Tórínó á Ítalíu á árunum 1978 - 82 og bjó þar alls í 12 ár eða til ársins 1987.

Hlín starfaði í sjö sumur sem fararstjóri á Rimini á vegum Samvinnuferða-Landsýnar og þegar hún fluttist heim skellti hún sér í Leiðsöguskólann og starfaði eftir það sem leiðsögumaður á sumrin með erlenda ferðamenn, aðallega ítalska ferðamenn á Íslandi.

Á veturna helgaði hún sig listinni og hefur hannað leikmyndir og búninga fyrir fjölmargar sýningar hjá Þjóðleikhúsinu og Leikfélagi Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu.

Árið 2002 lét Hlín loks gamlan draum rætast og opnaði ásamt eiginmanni sínum lítið gistiheimili sem heitir Forsæla við Grettisgötuna.



   
Árið 2012 fer Hlín í ferðina Haust 8 - Gardavatn & Feneyjar 6. - 16. október 2012 




Umsagnir farþega um Hlín:

„Hlín er lífleg og skipulögð.“
 
„Hún var elskuleg í allri viðkynningu og góður stjórnandi, hélt öllu í röð og reglu. Mjög góð og notaleg í öllum samskiptum.“
 
„Hlín stóð sig mjög vel. Röggsöm, vel að sér um ýmis mál, skemmtileg og ég gef henni mín bestu meðmæli.“
 
„Hlín er mjög góður fararstjóri. Fróð um þá staði sem farið var um og kom því skemmtilega frá sér.“
 
„Hún var mjög lifandi og vildi allt fyrir mann gera, var alveg frábær.“
 
„Hún er mjög vel undirbúin, hress og skemmtileg og náði góðu sambandi við alla í hópnum. Hún er auk þess fróð um sögu og staðarhætti.“
 
„Hlín er fararstjóri sem leggur sig 100% fram.“





Úr Bændaferð 11. – 22. okt. 2007:

Ferðalok

Ég tók mig upp og fór í ferð,
því skrifa þessar línur verð
og minnast þess sem fyrir bar
þó ekki fáist við öllu svar.

Um fjöll og dali fögur vötn,
kirkjur, klaustur, ótal söfn,
falleg býli bú og féð
ótal fleira hef ég séð.

Í rútum ókum milli staða
Öruggt, greitt á réttum hraða
með Ian skorska, traustum, röskum
létt hann lyfti þungum töskum.

Í hópnum flugu sögur gátur,
Vísur, skrítlur, söngur, hlátur.
Saklaus leikur léttir geð
þegar allir eru með.

Fararstjórinn víkkar sýn,
með hlýhug þakka verðum,
munið að hún heitir Hlín
og vinnur hjá bændaferðum
.

Höf: Ferðafélagi í Bændaferðum


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð