Guðbjörn Árnason (Bjössi) er fæddur á Teigi í Fljótshlíð árið 1960 og hefur allaf verið mikill sveitamaður.
Bjössi steig sín fyrstu skref í fararstjórn þegar hann tók á móti nokkrum hópum sem komu til Stuttgart meðan hann stundaði nám í Þýskalandi á árunum 1983 til 1990. Á námsárunum nýtti Bjössi frítíma sinn vel og ferðaðist víðsvegar um Evrópu.
Fyrstu ferðina fyrir Bændaferðir fór Bjössi svo árið 1990 og allar götur síðan hefur hann farið eina ferð á ári sem fararstjóri og þá yfirleitt fyrir Bændaferðir. Í Bændaferðum hefur Bjössi m.a. verið fararstjóri í Þýskalandi, Austurríki, Ítalíu,Ungverjalandi, Rúmeníu, Frakklandi, Sviss og Slóvakíu.
Bjössi lauk mastersprófi í landbúnaðarhagfræði frá Universität Hohenheim í Stuttgart árið 1990 og eftir heimkomuna starfaði hann í mörg ár í Bændahöllinni, lengst af sem framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda. Árið 1999 lá leiðin til KPMG og þar starfaði Bjössi fjögur ár en fluttist svo til Englands og bjó þar í eitt ár. Frá því í ársbyrjun 2005 starfar Bjössi sem viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka Fjármögnun.
Bjössi er kvæntur Hlín Hólm og eiga þau þrjú börn.
Árið 2012 fer Bjössi í ferðina Haust 2 - Tíról & Alparósir 20. - 27. september
Umsagnir farþega um Bjössa:
„Hann er einstaklega hjálpsamur og tillitsamur fararstjóri.“
„Hann hefur góða leiðsögumannshæfileika og er vel lesinn.“
„Góður og nákvæmur fararstjóri, samlagaðist hópnum mjög vel, var sem einn úr hópnum.“
„Skemmtilegur og fróður fararstjóri sem skapar gott andrúmsloft í kringum sig.“
„Bjössi er jákvæður og hress og tilbúinn að leysa allan vanda."
„Bjössi er lipur og góður í mannlegum samskiptum. Hann hefur góða tungumálakunnáttu og þekkir vel land og menningu.“