Georg Kári Hilmarsson

 

 
Georg Kári Hilmarsson fæddist í Reykjavík 1982. Hann er elstur þriggja sona Hólmfríðar Bjarnadóttur (Hófý) og Hilmars Arnars Agnarssonar. Georg fluttist með foreldrum sínum frá Þorlákshöfn til Hamborgar í Þýskalandi árið 1985, aðeins þriggja ára. Fjölskyldan bjó í Þýskalandi í 6 ár, fljótlega náðu þau tökum á málinu og Georg talaði þýsku eins og innfæddur 6 ára gamall og hefur haldið því.

Hófý fór sem fararstjóri í stóra Bændaferð til Rínar ásamt tengdaföður sínum, Agnari Guðnasyni, árið 1988 og þá var Georg aðeins 6. ára. Hann naut sín að vera með í þessari ferð og síðan þá hefur Goerg oft verið með móður sinni í Bændaferðum.

Síðast liðið vor var hann aðstoðarfararstjóri með afa sínum þar sem hann stóð sig með ágætum. Sennilega hafa forfeður Georgs gefið honum í veganesti inn í framtíðina fararstjóragenið sem DeCode hefur ekki rannsakað til hlýtar enn.

Georg hefur það sem þarf að prýða hvern fararstjóra, ríka þjónustulund, gott skap og kunnáttu á verkefninu. Ekki spillir að hann er ágætur músíkant og er meðlimur poppsveitarinnar „Sprengjuhöllin“.

 

 

Árið 2012 fer Georg í ferðina Haust 5 - Vínbændur & Kastalar 28. september - 5. október
 


 

Umsagnir farþega um Georg Kára:
 
 
„Frábær þjónustulund og verður væntanlega jafn fær að fylla ferðalanga fróðleik eins og Agnar var.“ 
 
„Hann er mjög liðlegur og alltaf í góðu skapi. Ég held að hann hafi leyst úr öllum vandamálum ef einhver voru. Mjög efnilegur.“ 
 
„Hann hefur allt til að bera, gott viðmót, glaður, jákvæður, hláturmildur.“ 
 
„Skemmtilegur og alltaf jákvæður, fólki getur ekki leiðst þar sem hann er nálægur!“
 
„Skemmtilegur, mátulega kærulaus, leysir vandamál sem upp koma.“
 



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð