
Við, Auður og Sumarliði Ingvarsson, tókum okkur upp og fluttum til Kanada árið 1976.Við fórum til Winnipeg en stoppuðum þar stutt því fyrripart árs 1977 fórum við til Calgary í Albertafylki. Þar bjuggum við í næstum fjögur ár, þá var haldið til Kelowna í Bresku Columbíu og þar erum við enn.
Við kynntumst Agnari Guðnasyni (sem hefur séð um Bændaferðir síðan þær hófust) árið 1982 þegar hann kom með 180 manns til að vera við opnun á húsi Klettafjallaskáldsins Stefans G.
Stefánssonar. Við urðum þeirrar ánægju aðnjótandi að bjóða hópnum heim og höfum þekkt Agnar síðan.
Árið 2000 fórum við að ferðast með ferðahópum frá Íslandi um Klettafjöllinn. Það er ákaflega gaman því fjöllin eru bæði falleg og stórbrotin. Á slétturnar er líka gaman að koma og sjá og upplifa hvar Íslendingar settust að og hitta fólk af íslenskum ættum þegar þeir halda upp á uppruna sinn.
Sjáumst í Kanada!
Umsagnir farþega um Auði og Sumarliða: „Einstaklega skipulögð, úrræðagóð, elskuleg og skemmtileg. Hreint út sagt alveg frábær. Fróð um flesta hluti og miðla vel.“
„Staðkunnug, skipulögð, úrræðagóð og glaðvær.“
„Gef hjónunum Auði og Sumarliða 10 í einkunn. Þau eru einstök, svo elskuleg og frábær í alla staði.“
„Auður og Sumarliði eru þægileg í alla staði. Þau eru fróð um þá staði sem farið var til og dugleg að segja frá.“
„Auður og Sumarliði eru góðir fararstjórar og félagar. Þau eru skapgóð og jákvæð og einstaklega dugleg að sýna hópnum sem mest á leiðinni.“