Arinbjörn Vilhjálmsson

 

Arinbjörn Vilhjálmsson er fæddur í Reykjavík 1963. Hann nam arkitektúr við Háskólann í Stuttgart í Þýskalandi og útskrifaðist þaðan árið 1993. Hann hefur starfað sem arkitekt síðan námi lauk en starfar nú sem skipulagsstjóri Garðabæjar. Á árunum 2003-2006 starfaði hann sem skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu.

Arinbjörn hefur lengi starfað sem leiðsögumaður og fararstjóri í frístundum. Hann hefur verið leiðsögumaður þýskumælandi ferðamanna á Íslandi frá árinu 1991 og fór sem farastjóri í sína fyrstu bændaferð árið 1997. Hann hefur veitt farastjórn í bændaferðum til Þýskalands, Austurríkis, Ítalíu, Sviss, Frakklands,Spánar og á íslendingaslóðir í Manitoba og Norður-Dakóta.








Umsagnir farþega um Arinbjörn:

„Arinbjörn er frábær fararstjóri og getur svarað öllu sem spurt var um, svo var hann eins og einn af okkur, ekki á nokkurn hátt yfir okkur hafin.“

„Hann er fróður og þægilegur, heldur vel utan um hópinn og hefur góðan húmor. Hann stóð sig mjög vel og miðlaði vel sinni vitneskju til okkar.“  

„Hann er mjög góður fararstjóri og einstaklega skemmtilegur.“

„Mjög góður fararstjóri, gaman hvað hann var fróður um alla staðina og kemur vel fyrir. Hann lagði mikinn metnað í að skila sínu vel.“

„Arinbjörn var eins og einn af hópnum, mjög skemmtilegur og þægilegur maður.“



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð