Agnar Guðnason

 

 
Agnar Guðnason
ráðunautur hefur stýrt Bændaferðum til útlanda í rúmlega fjóra áratugi en árið 2004 sameinuðust Bændaferðir utanlandsdeild Ferðaþjónustu bænda. 
 
„Búnaðarfélagið stóð fyrir ferð á Smithfield-landbúnaðarsýninguna í Englandi 1965. Mér blöskraði verðið og spurði árið eftir hvort ég mætti ekki skipuleggja ferð og bjóða bæði körlum og konum að fara með. Fram að því var bara körlum leyft að fara í bændaferðir," segir Agnar Guðnason. Þegar þetta gerðist var hann jarðræktarráðunautur hjá Búnaðarfélagi Íslands. Síðar varð hann blaðafulltrúi Bændasamtakanna og lengi ritstjóri Handbókar bænda. Þegar hann fór á eftirlaun fyrir nokkrum árum varð skipulagning og fararstjórn í bændaferðum hans aðalstarf.
 
Agnar hefur síðan árið 1965 skipulagt fjölda Bændaferða til nánast allra landa Evrópu og til Kanada. Hann hefur verið fararstjóri í svo mörgum ferðum að það verður varla talið upp hér, er einstaklega fróður og segir skemmtilega frá.
 

 


 
Árið 2012 fer Agnar í ferðina Haust 5 - Vínbændur & Kastalar 28. september - 5. október.
 

 

Umsagnir farþega um Agnar: 
 
„Agnar er afar léttur í lund og á gott með að sameina ferðafélaga, með góðum kvöldvökum, gleði og glens. Það væri gott fyrir hann að hafa Georg sér til aðstoðar.“ 
 
„Mæli alveg hiklaust með Agnari. Er vel að sér í nágrenni Móseldalsins, kann ótal sögur og skemmtilegur karl.“ 
 
„Bráðskemmtilegur og fróður.“ 
 
„Það er alveg ljóst að hann er mjög reyndur og fróður einkum um landafræði. Gaf glöggar upplýsingar, sem hægt var að treysta.“ 
 
„Það er notalegt að hafa þennan "Grand Old" höfðingja með...!“
 

Bændaferðirnar voru löngum viðburðaríkar
Viðtal við Agnar Guðnason nóv. 2004

 



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð