|
Arinbjörn Vilhjálmsson er fæddur í Reykjavík 1963. Hann nam arkitektúr við Háskólann í Stuttgart í Þýskalandi og útskrifaðist þaðan árið 1993. Hann hefur starfað sem arkitekt síðan námi lauk en starfar nú sem skipulagsstjóri Garðabæjar. Á árunum 2003-2006 starfaði hann sem skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu.
Arinbjörn hefur lengi starfað sem leiðsögumaður og fararstjóri í frístundum. Hann hefur verið leiðsögumaður þýskumælandi ferðamanna á Íslandi frá árinu 1991 og fór sem farastjóri í sína fyrstu bændaferð árið 1997. Hann hefur veitt farastjórn í bændaferðum til Þýskalands, Austurríkis, Ítalíu, Sviss, Frakklands,Spánar og á íslendingaslóðir í Manitoba og Norður-Dakóta. |