Dalmatíuströndin í Króatíu

Glæsileg ferð um töfrandi svæði við Dalmatíuströndina í Króatíu þar sem menning forfeðra svífur yfir. Sögulegir staðir frá tímum Rómverja, litríkar borgir og fagrar strendur taka á móti okkur. Flogið verður til Feneyja og áð í nágrenni flugvallar fyrstu nóttina. Áfram heldur för okkar til hinnar fögru Ljubljana, höfuðborgar Slóveníu, sem telst ein grænasta og líflegasta höfuðborg Evrópu. Á leiðinni þangað ætlum við að skoða hina víðfrægu Postojna dropasteinshella. Nú bíður okkar aðaláfangastaður ferðarinnar, Biograd na Moru við Dalmatíuströndina í Króatíu. Frá Biograd höldum við í fjölmargar skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. upplifum við ótrúlegt sjónarspil þegar við virðum fyrir okkur hina frægu fossa í Krk þjóðgarðinum og förum í sögufrægu borgina Split þar sem við heimsækjum Diokletian höllina. Því næst höldum við til Trogir, lítils bæjar á smáeyju sem tengd er meginlandinu en þar eru fjölmargar merkar byggingar varðveittar á heimsminjaskrá UNESCO. Einnig verður borgin Zadar heimsótt en þaðan er einstakt útsýni yfir hinar fjölmörgu króatísku eyjar. Endum þessa glæsilegu ferð með trompi í Trieste á Ítalíu og í Feneyjum sem stundum hafa verið kallaðar drottning Adríahafsins.

Verð á mann í tvíbýli 345.600 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 79.800 kr.


Innifalið

  • 11 daga ferð.
  • Flug með Play og flugvallarskattar. 
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgunverður allan tímann á hótelum.
  • Sjö kvöldverðir á hótelum.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll.
  • Siglingar.
  • Hádegisverðir.
  • Þrír kvöldverðir.
  • Vínsmökkun
  • Þjórfé.

Valfrjálst

  • Krka þjóðgarðurinn og fossar u.þ.b. € 24.
  • Postojna dropasteinshellar u.þ.b. € 25.
  • Sigling í Feneyjum u.þ.b € 20.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

19. september | Flug til Feneyja & akstur á hótel

Brottför frá Keflavík kl. 14:45. Mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Feneyjum kl. 21:05 að staðartíma. Ekið á hótel í nágrenni flugvallar þar sem gist verður fyrstu nóttina og létt kvöldsnarl bíður okkar.

20. september | Postojna dropasteinshellarnir & Ljubljana í Slóveníu

Eftir góðan morgunverð verður stefnan tekin á höfuðborg Slóveníu, Ljubljana. Á þessari fallegu leið verður komið til Postojna en þar er að finna hina víðfrægu dropasteinshella. Umhverfi hellanna er mjög fallegt og hægt að skoða sig um í minjagripaverslun eða kíkja á veitingastaði og kaffihús. Við tökum okkur tíma til að kanna hellana og njóta náttúrufegurðar svæðisins áður en ferðinni verður haldið áfram til Ljubljana. Gist verður í tvær nætur á góðu hóteli miðsvæðis í Ljubljana. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

21. september | Skoðunarferð í Ljubljana & frjáls tími

Byrjum daginn á að fara í skemmtilega skoðunarferð um Ljubljana, höfuðborg og stærstu borg Slóveníu, sem telst ein grænasta og líflegasta höfuðborg Evrópu. Borgin er hrífandi og Ljubljanica áin rennur um hjarta hennar. Eftir það verður frjáls tími til að kynnast þessari fallegu borg á eigin vegum og er tilvalið að kíkja inn til kaupmanna eða setjast niður á kaffihúsi og fylgjast með mannlífinu. Kvöldverður á eigin vegum.

Opna allt

22. september | Dalmatíuströndinni & Biograd na Moru í Króatíu

Nú er komið að því að kveðja Ljubljana en ferðin heldur áfram suður um Dalmatíuströndina í Króatíu þar sem bærinn Biograd na Moru tekur á móti okkur í allri sinni dýrð. Þessi töfrandi strandbær býr yfir mörgum sögulegum fjársjóðum og er umlukinn náttúrufegurð. Hér gistum við í sex nætur á góðu hóteli við ströndina. Á hótelinu er innisundlaug, sauna og heilsulind. Á veröndinni er einnig kokteilbar og örstutt á ströndina. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

23. september | Krk þjóðgarðurinn & Krka fossarnir

Dagsferð um gimstein Dalmatíu, sjálfan Krka þjóðgarðinn sem heitir eftir 73 km langri á með sama nafni. Hér skoðum við hina frægu Krka fossa. Þarna blasir við ólýsanleg fegurð, fossar, stallar og hyljir mynda saman stórkostlegt náttúrusjónarspil sem hrífur alla sem staðinn heimsækja. Hér er um að gera að klæðast góðum skóm, því eina leiðin til að virða fyrir sér dýrðina er fótgangandi. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

24. september | Frjáls dagur í Biograd

Frjáls dagur og hverjum og einum gefst tækifæri til að skoða Biograd betur á eigin vegum, kanna umhverfið eða njóta þess að slaka á á hótelinu. Upplagt er að fara í göngutúr eftir ströndinni og njóta fegurðar þessa dásamlega staðar. Kvöldverður á eigin vegum.

25. september | Split & Trogir

Dagsferð til sögufrægu borgarinnar Split, sem er hrífandi borg. Virðulegar byggingar og minjar frá tímum Rómverja prýða Split og hefur elsti hluti hennar verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan árið 1979. Borgin er eins og lifandi safn. Við heimsækjum Diokletianhöllina, sem er einn af merkilegustu minnisvörðum byggingarlistar frá tímum Rómverja en hún var byggð á mettíma á árunum frá 295 – 305 e. Kr. Höllin er líflegur staður og er oft talað um hana sem hjarta borgarinnar. Eftir góðan tíma í borginni verður ekið til Trogir, snoturs bæjar úti á smáeyju, sem tengd er meginlandinu. Elsti hluti Trogir er einnig varðveittur á heimsminjaskrá UNESCO. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

26. september | Dagur í Zadar

Í dag er áætluð ferð til aldagömlu lista- og menningarborgarinnar Zadar en þaðan er einstakt útsýni yfir hinar fjölmörgu króatísku eyjar. Við hefjum heimsóknina á stuttri skoðunarferð um borgina og að henni lokinni gefst hverjum og einum tími til að skoða borgina á eigin vegum. Upplagt er að fá sér hressingu, fylgjast með lífi bæjarbúa og líta inn til kaupmanna. Komið verður snemma heim á hótel og getur fólk tekið það rólega það sem eftir er dagsins. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

27. september | Dýrðardagur í Biograd

Þessi dagur er til að njóta á þessum fagra stað, upplagt er að nota aðstöðuna á hótelinu, panta sér tíma í heilsulindinni eða skella sér í sundsprett í Adríahafi. Kvöldverður á eigin vegum.

28. september| Hafnarborgin Trieste á Ítalíu

Nú er komið að kveðjustund eftir yndislega daga í Biograd. Við höldum til hafnarborgarinnar Trieste á Ítalíu en skipulag þessarar fallegu borgar ber keim af austurrískum, ungverskum og slóvenskum áhrifum. Gist verður á vel staðsettu hóteli miðsvæðis í borginni. Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

29. september | Feneyjar & heimferð

Nú verður ekið til til Feneyja og byrjum við þar á ljúfri siglingu inn í borgina frá bílastæðinu. Auður og íburður blasir hvarvetna við og á vegi okkar verða stórfenglegar sögulegar byggingar eins og hertogahöllin sem er ein glæsilegasta bygging borgarinnar. Við skoðum líka Markúsartorgið þar sem Markúsarkirkjan stendur. Hún er ein merkilegasta kirkjubygging veraldar, byggð í austrænum stíl og minnir á höllina úr ævintýrinu 1001 nótt. Við komum að hinni frægu Rialto brú sem liggur yfir Canal Grande skurðinn en hann mun vera 3,8 km langur og 900 m breiður og við hann standa hvorki fleiri né færri en 200 hallir. Síðdegis mun hverjum og einum gefast tími til þess að skoða þessa fallegu borg betur og njóta mannlífsins. Upplagt er að fá sér kvöldverð í borginni áður en siglt verður til baka. Ekið verður út á flugvöll í Feneyjum. Brottför þaðan kl. 22:05 og lent í Keflavík kl. 00:40 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Íris Sveinsdóttir

Ég heiti Íris Sveinsdóttir og er hárgreiðslumeistari að mennt. Ég rek hárgreiðslustofur bæði á Íslandi og í Þýskalandi, en þar bjó ég í rúm 20 ár þangað til að ég ákvað að flytja aftur heim til Íslands 2007. Eftir heimkomuna hóf ég leiðsögunám í Endurmenntun Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 2009. Síðan þá hef ég starfað sem leiðsögumaður bæði hér heima og erlendis.

Senda fyrirspurn um ferð

bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790

 

Tengdar ferðir




Póstlisti