Aðventutöfrar í Tíról


 

27. nóvember - 4. desember 2012
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir

Aðventuljómi Austurríkis er heillandi. Jólaljósin og ilmurinn af brenndum möndlum og hnetum kemur okkur í jólaskap og fegurð Alpanna umvefur okkur. Eftir flug til München byrjum við á því að fá okkur hressingu í miðborginni, en síðan verður ekið til Seefeld í Tíról sem er í 1180 m hæð á milli Wetterstein-, Mieminger- og Karwendel-fjallanna og er með þekktustu ferðamannabæjum Tíróls. Gistum þar í 7 nætur. Þaðan verður farið í skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. til tónlistarborgarinnar Salzburgar sem er ein af perlum landsins, komið til Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi og í bæinn Mittenwald, sem á sér engan líkan, með sínum litlu myndskreyttu húsum, bæjarlæk og skemmtilegum verslunum. Ekin verður falleg leið yfir Brennerskarðið til Brixen í Suður-Tíról á Ítalíu. Einnig verður komið til Wattens, þar sem er mjög fallegt Swarovski safn og verslun. Síðast en ekki síst heimsækjum við hina heillandi miðaldaborg Innsbruck, höfuðborg Tíróls þar sem er glæsilegur aðventumarkaður. Í ár verða ævintýri Grimm-bræðra í hávegum höfð á aðventunni í Innsbruck og mun leikhúsvagn leiða gesti og gangandi inn í ævintýraveröld þeirra við eina elstu götu borgarinnar.   
 

 

 

 
27. nóvember              Flug til München og ekið til Seefeld í Tíról
Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð um 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 12.05 að staðartíma (+ 1 klst. tímamismunur). Byrjum á því að fara inn í München og fá okkur hressingu og líta á mannlíf borgarbúa. Þaðan verður ekið til Tíról í Austurríki, til Seefeld sem er í 1180 m hæð inn á milli fjallanna. Þar verður gist í 7 nætur á hóteli inni í miðbænum.
 
28. nóvember              Dagur í Salzburg
Eftir góðan morgunverð verður ekið til fæðingarborgar Mozarts, Salzburgar. Borgin er þekkt fyrir byggingar í barokkstíl og var hún skráð á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996, en Salzburg er í hugum margra sannkölluð perla Austurríkis. Við byrjum á að fara í stutta skoðunarferð um borgina, skoðum Mirabell garðinn og göngum eftir Getreidegasse sem er með elstu og þekktustu götum borgarinnar, en þar er mjög áhugavert Mozartsafn. Einnig verður hægt að fara upp í kastalann Hohensalzburg þar sem hluti kvikmyndarinnar Söngvaseiðs eða „Sound of Music“ var tekinn upp. Stórkostlegt útsýni er þaðan yfir Salzburgerland og borgina. Síðan gefst frjáls tími til að kanna iðandi mannlíf borgarinnar og fá sér hressingu. 
 
29. nóvember              Frjáls dagur í Seefeld
Í dag verður frekar rólegur dagur, byrjum á góðum morgunverði og síðan verður stutt skoðunarferð um Seefeld sem er með eftirsóttustu ferðamannabæjum Tíróls. Seefeld er umkringdur fjöllum, en hér áður var þetta mikið vatnasvæði og ber nafn bæjarins það með sér. Eftir stutta göngu með farastjóranum er frjáls tími það sem eftir er dags. Hér er margt hægt að gera, t.d. fara með hestvagni um bæinn, í gönguferð hringinn í kringum vatnið eftir þægilegri gönguleið og svo er hægt að fara upp á fjallið Rosshütte með kláfi sem fer upp í 1784 m hæð, en þar er gott veitingahús og upplagt að fá sér kaffi og tertusneið.
 
30. nóvember              Garmisch-Partenkirchen og Mittenwald
Í dag förum við í skoðunarferð til Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi, sem er einn þekktasti skíðabærinn í þýsku Ölpunum. Förum í stutta skoðunarferð um bæinn og auðvitað verður frjáls tími eftir það. Á leiðinni tilbaka verður komið við í bænum Mittenwald, sem á sér engan líkan og sér í lagi á aðventunni, með sínum litlu myndskreyttu húsum, bæjarlæk og skemmtilegum verslunum. Bærinn er frægur fyrir smíði strengja- og plokkhljóðfæra, s.s. fiðlu og gítars og stendur minnisvarði af Matthias Klotz, upphafsmanni fiðlusmíðar, í Mittenwald fyrir utan fiðlusafn bæjarins.
 
1.desember              Dagur í Brixen
Á dagskrá okkar í dag er Brixen í Suður-Tíról á Ítalíu. Farið verður í skemmtilega gönguferð um elsta hluta borgarinnar, höfuðstaðar Eisackdalsins sem liggur við rætur fjallsins Plose. Þessi 20.000 manna fallegi bær hefur gamlar götur, brýr, kirkjur og söfn. Þar mætast árnar tvær Eisack og Rienz og þetta allt, ásamt vínekrum, aldingörðum og fleiru gerir Brixen heillandi og sér í lagi á aðventunni, en á aðaltorgi bæjarins er jólamarkaður. Góður tími gefst til að fá sér hressingu og kanna líf borgarbúa áður en ekið verður heim yfir Brennerskarðið sem er stórbrotin og undurfalleg leið.
 
2. desember              Rólegur dagur í Seefeld
Nú verður rólegur dagur hjá okkur, njótum þess að vera í þessum fallega bæ, líta inn til kaupmanna bæjarins og fá okkur hressingu á einum af fjölmörgu veitinga- og kaffihúsum í bænum. Í dag er aðventumarkaður í bænum.
 
3. desember              Dagur í Innsbruck
Byrjum daginn á að aka til Wattens þar sem Swarovski verksmiðjurnar, safnið og verslunin er. Farið verður inn á safnið og í verslunina áður en ekið er til Innsbruck. „Brúin yfir Inn“, höfuðborg Tíróls, er umvafin fjöllum og áin Inn rennur um borgina. Miðaldahluti hennar er mjög heillandi og þar er mjög skemmtilegur jólamarkaður. Hér verður farið í stutta skoðunarferð um borgina, en eftir það verður hægt að kíkja á aðventumarkaðinn eða líta inn til kaupmanna borgarinnar í Maria-Theresien-Straße.
 
4. desember              Heimferð
Eftir yndislega ferð verður ekið til München. Brottför þaðan kl. 13.05. og lending í Keflavík kl. 16.00. að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært milli daga eftir því sem þörf þykir þegar komið er á staðinn.

 
 


 

 
Verð: 166.100 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 15.600 kr.  
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst: Swarovski safnið ca. € 11.

 

Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 

 

 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð