Aðventuprýði í Prag

 

1 - 8. desember 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir

 

Aðventan og stjörnudýrð hennar, töfrandi jólaskreytingar, ilmur frá brenndum möndlum og jólaglögg kemur okkur í jólastemningu í heillandi ferð til lista- og menningarborgarinnar München í Þýskalandi og gullborgarinnar Prag í Tékklandi. Flogið verður til München þar sem gist verður í 2 nætur í miðborginni og farið í skemmtilega skoðunarferð um þessa töfrandi borg. Við skoðum fagrar byggingar, kirkjur og söfn, heimsækjum jólamarkaði og njótum aðventustemningar á kaffi- og veitingahúsum borgarinnar. Þá höldum við til Prag. Á leiðinni verður stoppað í Pilsen hjá Pilsener Urquelle bjórverksmiðjunni, farið í mjög skemmtilega skoðunarferð um safnið, borðað létt snarl og drukkinn bjór. Prag tekur á móti okkur í allri sinni dýrð. Menning, listir og dulúð miðalda setja svip sinn á þessa fallegu borg sem iðar af mannlífi og fögur mannvirki prýða borgina, þ.á.m. Karlsbrúin, Hradcany kastalinn og Stjörnuklukkan. Hægt er að sækja tónleika og listasöfn eða skoða litskrúðugar verslanir þar sem hægt er að kaupa hinn fræga kristal. Gistum í 4 nætur á hóteli í miðborg Prag. Endum þessa skemmtilegu ferð á að gista eina nótt í Regensburg, gömlu rómversku borginni með 2000 ára sögu, en borgin er á heimsminjaskrá UNESCO.
 

 

 

 
1. desember              Flug til München
Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð um 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 12.05 að staðartíma (+ 2 klst. tímamismunur). Gist verður í 2 nætur á góðu hóteli inni í miðbænum. München er heillandi borg og er ein af aðalmenningar-  og listaborgum landsins. Förum í stutta skoðunarferð með rútu um helstu staði borgarinnar áður en við förum á hótelið.
 
2. desember              Stutt skoðunarferð í München og frjáls tími
Eftir góðan morgunverð verður stutt skoðunarferð inn í miðbæ borgarinnar sem endar á Marienplatz torginu við eitt fallegasta ráðhús landsins. Þar er einn vinsælasti af fjölmörgu jólamörkuðum borgarinnar og væri upplagt að fá sér hressingu saman. Eftir það gefst frjáls tími til að skoða sig betur um, en borgin er heillandi á þessum tíma með aðventuskreytingum sínum, jólamörkuðum, kirkjum, söfnum, verslunum, óteljandi notalegum veitingastöðum og kaffihúsum með töfrandi jólastemningu.
 
3. desember              München – Prag
Gullborgin Prag í Tékklandi er okkar næsti áfangastaður, þar sem gist verður í 4 nætur á hóteli í hjarta borgarinnar. Á leiðinni verður stoppað í borginni Pilsen hjá Pilsen Urquelle bjórbrugghúsinu sem býður upp á einn frægasta bjór landsins. Borðum þar léttan hádegisverð og einnig verður farið í skoðunarferð um brugghúsið sem er mjög skemmtilegt.
 
4. desember              Skoðunarferð í Prag
Fyrri part dags verður farið í skoðunarferð um þessa höfuðborg Tékklands og eina af fallegustu borgum Evrópu. Íbúar borgarinnar eru 1,2 milljón en Prag hefur verið ein helsta menningarmiðstöð Evrópu um aldir. Farið verður að Karlsbrúnni, ráðhúsinu með stjörnuklukkunni og Wenzeltorginu svo eitthvað sé nefnt. Frjáls tími verður eftir hádegi til að kanna líf borgarbúa.
 
5. desember              Zámek Troja höllin og dagur í Prag
Byrjum daginn í rólegheitum fram yfir hádegi, en eftir það förum við í stutta ferð að höllinni Zámek Troja sem er í Troja hverfinu í Prag á hægri bakkanum við Moldá. Höllin er ein mikilvægasta og glæsilegasta barokkhöll Bæheims. Hún var byggð á 17. öld í barokkstíl, umvafin frönskum listigarði með gosbrunnum og styttum úr grísku goðafræðinni. Upphafsmaður byggingar hallarinnar var meðlimur einnar mikilvægustu aðalsættar borgarinnar Václav Vojtěch von Šternberk. Förum í skoðunarferð um höllina og eftir það komum við við á aðventumarkaði Troja hverfisins og fáum okkur jólaglögg saman áður en haldið verður á hótelið.
 
6. desember              Hradčany kastalinn
Fyrri part dags verður farið í skoðunarferð um Hradčanykastala, sem hefur verið bústaður forseta lýðveldisins síðan 1918. Þarna byrjaði að byggjast upp á 9. öld og var fursta- og biskupsdæmið í Prag þarna frá 973. Þetta svæði er einn mikilsverðasti og sérstakasti hluti Prag. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður á veitingastað frá 13. öld við ráðhústurninn, en hann prýðir eina af frægustu stjörnuklukkum veraldar.
 
7. desember              Prag – Regensburg
Nú leggjum við snemma af stað til Þýskalands þar sem við gistum síðustu nóttina í Regensburg, gamalli rómverskri borg með 2000 ára sögu, þar sem dulúð miðalda setur svip sinn á borgina sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Stefnum á að vera komin þangað um hádegi og förum í stutta skoðunarferð áður en það verður frjáls tími í miðbænum. Höldum síðan á hótelið sem er í útjaðri borgarinnar. 
 
8. desember              Heimferð
Eftir indæla og skemmtilega ferð verður ekið til München. Brottför þaðan kl. 13.40 og lending í Keflavík kl. 16.15 að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

 
 


 
 
 
Verð: 174.600 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 39.500 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallaskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Pilsen hjá Pilsen Urquelle bjórbrugghúsinu- safn, bjór og snarl € ,Aðgangur í gullgötuna og Hradčany kastalann ca. € 5. Sigling í Prag ca. € 13, Zámek Troja höllin €. 
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð