3. desember Flug til Frankfurt og ekið áfram til München
Brottför frá Keflavík kl. 8.10. Mæting í Leifsstöð 2 klst. fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12.45 að staðartíma (+1 klst). Frá Frankfurt er ekið í áttina til München og gist fyrstu nóttina í nágrenni við borgina.
4. desember München – St. Wolfgang
Eftir morgunverð verður ekin falleg leið til St. Wolfgang við Wolfgangsee. Á leiðinni þangað verður stoppað við vatnið Chiemsee, siglt út í Frúareyjuna, en þar er mjög skemmtilegur aðventumarkaður með fallegu handverki og svo er fegurðin ólýsanleg á þessum tíma við vatnið. Gist í fjórar nætur í St. Wolfgang.
5. desember Hringferð um Wolfgangsee
Í dag verður ekið um vatnið, til St. Gilgen, sem er t.a.m. fæðingarbær móður Mozarts, og einnig til Strobl,en þetta eru aðal bæirnir við Wolfgangsee vatnið. Aðventustemning og ljósadýrð er mikil á þessu svæði, skemmtileg kaffihús og iðandi mannlíf.
6. desember Salzburg
Nú verður ekið til fæðingarborgar Mozarts, Salzburg. Borgin er þekkt fyrir byggingar í barokkstíl og var skráð á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996, en Salzburg er í hugum margra sannkölluð perla Austurríkis. Við byrjum á að fara í stutta skoðunarferð um borgina, skoðum Mirabellgarðinn og göngum eftir Getreidegasse sem er með elstu o

g þekktustu götum borgarinnar, en þar er mjög áhugavert Mozartsafn. Kastalinn Hohensalzburg setur einnig svip sinn á borgina, en þar var hluti kvikmyndarinnar Söngvaseiðs eða „Sound of Music“ tekinn upp. Ekki má gleyma aðventumarkaðinum sem er stolt þeirra á aðventunni.
7. desember Altötting – Oberndorf
Altötting er einn elsti Pílagrímsbær Bæjaralands, glæsilegar byggingar og kirkjur í barokkstíl setja fallegan svip á borgina og er aðventumarkaðurinn talinn með þeim fallegustu í landinu. Á leiðinni þangað verður stoppað í Oberndorf við frægu kapelluna, „Stille Nacht“ þar sem jólasálmurinn „ Hljóða nótt, heilaga nótt“ varð til.
8. desember St. Wolfgang - Bamberg
Kveðjum St. Wolfgang og ökum til gömlu keisaraborgarinnar Bamberg í Þýskalandi. Á leiðinni þangað verður stoppað í München þar sem hægt verður að fá sér hressingu og skoða sig um í borginni. Gist í Bamberg í 2 nætur.
9. desember Dagur í Bamberg
Bamberg í Bæjaralandi er mjög skemmtileg og lífleg borg með um 71.000 íbúum. Hún státar af mörgum fallegum og frægum byggingum, eins og t.d. rómönsku dómkirkjunni, höll biskupsins, Karmelitaklaustrinu og gamla ráðhúsinu. Ekki má gleyma reykbjórnum sem ,,Schlenkerla“ kráin er fræg fyrir. Í dag verður frjáls dagur til að fara á jólamarkaðinn á ráðhústorginu og njóta alls þess sem borgin hefur upp á að bjóða.
10. desember Heimferð
Nú er komið að heimferð. Eftir morgunverð verður ekið til Frankfurt. Brottför þaðan kl. 13.50 og lending í Keflavík kl. 16.20 að staðartíma.
Fararstjóri getur fært milli daga eftir því sem þörf þykir þegar komið er á staðinn.
Sjá allar upplýsingar um verð og innifalið á næsta flipa hér fyrir ofan.