Aðventudýrð í Dresden

 

30. nóvember - 7. desember 2012
Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir

Aðventan er heillandi tími til að sækja Þýskaland heim. Ljósadýrðin gefur þessum árstíma birtu og yl og ilmur af jólaglöggi, brenndum möndlum og hnetum kemur öllum í jólastemningu. Glæsileg ferð sem hefst með flugi til Frankfurt. Þaðan er ekið til Eisenach, þar sem þeir Martin Luther og Johannes Sebastian Bach eru fæddir og gistum þar í 2 nætur. Heillandi borg með Wartburg-virkinu, sem telst til merkustu miðaldavirkja landsins og líflegum jólamarkaði. Nú verður haldið til Dresden, með viðkomu í Weimar, sem skipar stóran sess í þýskri sögu, Weimarlýðveldið og stjórnarskrá millistríðsáranna varð til í borginni og er kennd við hana. Dresden, höfuðborg Saxlands, tekur nú á móti okkur. Borgin varð á 15. öld aðsetur Wettiner-furstanna, en meðal afkomanda þeirra var Ágúst sterki sem átti stóran þátt í að gera Dresden að þeirri fallegu borg sem var kölluð „Flórens við Saxelfi“. Gistum þar í 4 nætur. Einnig verður komið til Meissen sem er sérstaklega þekkt fyrir Meissen-postulínið, eitt elsta og verðmætasta postulín í Evrópu, en þar er líka einn af fegurstu jólamörkuðum Þýskalands. Ferðinni ljúkum við í barokkborginni Fulda þar sem gist verður síðustu nóttina.   

 

 

 
30. nóvember               Flug til Frankfurt og ekið til Eisenach.
Brottför frá Keflavík kl. 07.35 og lending í Frankfurt kl. 12.00 að staðartíma þaðan sem ekið verður til Eisenach og gist þar í 2 nætur. Í Eisenach líkt og í öðrum þýskum borgum er fallegur jólamarkaður þar sem er upplagt að líta við og smakka heitt Glühwein áður en hópurinn borðar saman kvöldmat á hótelinu.
 
1. desember               Dagur í Eisenach
Eisenach er ekki stór borg (44.000 íbúar), en mjög falleg miðaldaborg og á hún sér merka sögu. Eisenach er fæðingarborg bæði Martins Luthers og Johannasar Sebastians Bachs. Það er mjög áhrifaríkt að heimsækja fæðingarborg þeirra á aðventunni og er miðbærinn mjög fallegur, en hann var fallega endurbyggður eftir að hann fór illa í stíðinu. Hópurinn skoðar einnig Wartburg-virkið, sem telst til merkustu miðaldavirkja í Þýskalandi og er á heimsminjaskrá UNESCO. Martin Luther sat þar í gæsluvarðhaldi og þýddi á meðan Nýja testamentið. Hægt er að skoða fæðingarhús hans og einnig J.S. Bachs. Í Eisenach er svo stórskemmtilegt bílasafn, en hér voru einmitt Wartburgbílarnir framleiddir á dögum austurþýska alþýðulýðveldisins.
 
2. desember               Eisenach – Weimar – Dresden
Við kveðjum Eisenach að morgni og höldum af stað til Dresden með viðkomu í Weimar. Borgin skipar stóran sess í þýskri sögu, Weimarlýðveldið og stjórnarskrá millistríðsáranna varð til í borginni og er kennd við hana. Í Weimar bjuggu og störfuðu líka nokkrir af ástsælustu listamönnum Þýskalands s.s. rithöfundarnir Johann Wolfgang von Goethe og Friedrich Schiller. Tónskáldið Franz List samdi einnig mörg sinna mikilvægustu tónverka í Weimar. Í þessari litlu fallegu borg er hægt að skoða húsin þar sem þessir miklu snillingar bjuggu og unnu að listsköpun sinni. Listastefnan „Bauhaus“ varð til í Weimar og þar er víðfrægt Bauhaus-safn. Þaðan verður ekið til Dresden og gistum við þar í 4 nætur.
 
3. desember               Dagur í Dresden
Hefjum daginn á skoðunarferð um Dresden, höfuðborg Saxlands, með um 450.000 íbúa. Borgin var stofnuð í upphafi 13. aldar en á 15. öld varð hún aðsetur Wettiner-furstanna, hverra afkomandi var Ágúst sterki, sem átti stóran þátt í að gera Dresden að hinni undurfögru borg sem oft er kölluð „Flórens við Saxelfi“. Dresden fór mjög illa í seinni heimsstyrjöldinni, en hefur nú öðlast sinn upprunalega ljóma og er orðin ein af fegurstu borgum Evrópu. Með mörgum af þekktustu listasöfnum heims, kvennakirkjunni eða Frauenkirche og eðalsteinasafninu. Í Dresden er fallegur og vinsæll jólamarkaður og þaðan kemur jólakakan Dresdner Christstollen.
 
4. desember               Miðaldaborgin Meissen
Í dag heimsækjum við aðra merka miðaldaborg, Meissen. Meissen er sérstaklega þekkt fyrir Meissen-postulínið, sem er eitt elsta og verðmætasta postulín í Evrópu. Við skoðum hvernig postulínið verður til og postulínssafnið, þar sem áhugavert er að sjá það sem skapað hefur verið úr postulíni í aldana rás. Í Meissen er líka einn af fegurstu jólamörkuðum Þýskalands, stemningin þar er einstök og gefin verður góður tími til að njóta lífsins á jólamarkaðinum og skoða dómkirkjuna og Albrechtbürg virkið, sem setur einstakan svip á borgarmynd Meissen. Á heimleiðinni er svo upplagt að koma við hjá einum vínframleiðanda á svæðinu, fá fræðslu um hvernig vínið verður til og smakka á framleiðslunni, en í Meissen og nágrenni eru framleidd mörg afbragðs vín.
 
5. desember               Frjáls dagur í Dresden
Frjáls dagur í Dresden. Tími og tækifæri til að skoða hin stórmerku söfn s.s. málverkasafnið með merkustu verkum Rafael, Rembrandt og annarra stóru listmálara sögunnar. Eðalsteinasafn og postulínssafn Ágústs sterka, nú eða Semper-óperuhúsið. Í Dresden er líka fjöldinn allur af spennandi verslunum.
 
6. desember               Kveðjum Dresden, ekið til Fulda
Eftir morgunverð kveðjum við Dresden í bítið og ökum rakleiðis til Fulda sem er gamall biskupabær. Stolt þeirra er borgarhöllin eða Stadtschloss sem tengd er dómkirkjunni og Michaeliskirkjunni sem er með elstu kirkjum Þýskalands frá árinu 822. Gistum hér síðustu nóttina á hóteli sem má segja að sé í hallargarðinum og einn matsalur hótelsins var hér áður vetrargarður hallarinnar. Nú er upplagt að ganga saman inn í hjarta Fulda og líta á mannlíf borgarinnar.
 
7. desember               Heimferð
Eftir jólalega og skemmtilega ferð verður ekið til Frankfurt. Brottför þaðan kl. 13.40 og lending í Keflavík kl. 16.15 að staðartíma.
 
 
Fararstjóri getur fært milli daga eftir því sem þörf þykir þegar komið er á staðinn.
 
 


 
 
 
Verð: 171.800 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 26.400 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Aðgangur í Wartburg-virkið ca. € 10, Meissen postulínssafnið ca. 6 og vínsmökkun ca. € 8.
  
 
 

Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 

 

 

 
 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð