Áramót


 

 

Áramótasigling á Signu


28. desember 2012 - 3. janúar 2013
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
 

Glæsileg áramótasigling eftir ánni Signu í Frakklandi og um borg ástarinnar, París, sem er töfrandi á þessum tíma. Þar sem víkingar sigldu um og fjöður sögunnar við ána fylgir okkur, sagnir af stoltum konungum og bálför Jóhönnu af Örk, upplifum við eplaakra, kastala, undurfalleg klettasvæði og aldagamlar borgir. Ferðin hefst í París, þar sem skipið MS Renoir bíður okkar. Á meðan á siglingu stendur verður farið í skemmtilegar og áhugaverðar skoðunarferðir, t.d. til Rouen, þar sem Jóhanna af Örk var brennd á báli, Caudebec-en-Caux, Honfleur sem er yndislegur bær og Étretat, bæjarins sem er dásamaður fyrir samnefnda krítarkletta. Þessi yndislega 4 nátta sigling endar í París á gamlársdag, rétt við Eiffelturninn og auðvitað verður farið í töfrandi skoðunarferð um þessa stórkostlegu borg. Um kvöldið er glæsilegur hátíðarkvöldverður, með tónlist og dansi og við skálum saman fyrir nýju ári. Á nýársdag kveðjum við áhöfn MS Renoir,ökum á hótel í París þar sem við gistum í tvær nætur. Þá gefst tími til kanna borgina á eigin vegum og farið verður í skoðunarferð að Versölum.
 




Flýtileiðir




Skipta um leturstærð