Bændaferðir 2012
Nú er kominn út splunkunýr bæklingur Bændaferða fyrir allt árið 2012. Í einum og sama bæklingnum er að finna útivistarferðir eins og skíðaferðir, gönguferðir, hjólaferðir og maraþonferðir, rútuferðir um alla Evrópu ásamt rútuferðum um Kanada og að sjálfsögðu hinar þekktu sérferðir til framandi landa.
Upp í sveit 2011
Ef þú vilt komast í sveitasæluna í þá er tilvalið að sækja ferðaþjónustubændur heim, en í dag eru 180 félagar í Ferðaþjónustu bænda. Boðið er upp á gistingu inni á heimili gestgjafa, gistihúsum bænda, sveitahótelum og sumarhúsum. Máltíðir að hætti heimamanna. Einnig er fjölbreytt afþreying í boði, s.s. hestaferðir, gönguferðir, veiði, golf og fuglaskoðun. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi allan ársins hring.